Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

12 manna úrslit leikdagur 3

Þá liggur það ljós fyrir, við eigum þrátt fyrir allt farand bikar, það er ljós að nýtt nafn kemur á bikarinn þetta árið.

Ingi Þór gerði sér lítið fyrir og lagði Magga í gær í Grafarholtinu á 16. holunni.

Leikurinn var nokkuð spennandi frá upphafi til enda, Magga vann holu 2 og svo fellu allar þar til komið var á 6. holuna, þá vann Ingi Þór 4 í röð, Maggi náði að klóra í bakka og minnka þetta í 2 holur eftir 13, en eftir að Maggi sló í ruslið vinstra megin við 15. flötina og þurfti að gefa holuna þá var Ingi Þór kominn með Dormie, og svo þegar Maggi sló öðru högginu sína í tjörnina á 16. þá var leikurinn eiginlega úti, sérstaklega þar sem Ingi Þór átti forgjöf á þá holu líka.

en semsagt Ingi Þór kominn áfram í 8 manna úrslit.

 


12 manna úrslit, leikdagur 2.

Þá eru Sammi og Benni búnir að spila sinn leik, gefum Benna orðið:

Mér þykir leitt að tilkynna úrslit gærdagsins, fimman hjá Samma var alveg ísköld á fyrri níu meðan ýmislegt gekk upp hjá mér.Úrslitin urðu því sigur 6/5 og ég í skítamálum að fara í frí nánast með aðra hönd á bikarnum.Gerði reyndar samning við Samma um að hann færi áfram fyrir mína hönd og ég fengi þá að hafa bikarinn eina viku í mánuði á móti honum.En nú verður umboðsmaður St Andrews að ákveða framhaldið, Kveðja

Benni

 

12 manna úrslit.

Denni og Heimir hittust fimmtudaginn 9. ágúst og háðu leik um það hvor kemst í 8 manna úrslit.

Spilað var í Grafarholtinu og var veðrið ekkert til að hrópa húrra fyrir, búið að rigna allann daginn, en hélt sér þó að mestu þurum á meðan leik stóð.

Leikskýrsla óskast sem fyrst.

 


Úrslit deildarinnar

Þá er deildin búin að búið að afgreiða öll kærumál og kærufrestur útrunninn.

Úrslitin eru hér til vinstri.

Emil og Maggi þurfa að taka auka leik um það hvor verður í 4. sætinu, þá er það holukeppni.

í 12 mann úrslitum leika þá

Emil/Maggi (5.) - Ingi Þór (12.)

Óli (6.) - Svenni (11.)

Benni (7.) - Samma (10.)

Heimir (8.) - Denna (9.)

 

 


12. leikdagur

Spilað var á Korpunni í drullu roki og leiðinda veðri, flatirnar á Korpunni er enn skelfilegar og vonandi ná þeir að vinna sig útúr þessu og koma með flottar flatir næsta vor.

Þá er deildinni lokið og við tekur úrslita keppnin.

Deildarmeistari er Ingi Ólafs og vann hann deildina mjög sannfærandi.

Við óskum honum til hamingju með titilinn.

 


11.Leikdagur - Úrslit

Spilað var á Korpunni í fínu veðri. Fengum einn "hitaskúr" á okkur annars var veðrið fínt eins og áður segir.

Völlurinn er því miður langt frá því að vera góður og eru grínin virkilega slæm. Maggi lét það ekki hafa áhrif á sig og spilaði 1 undir pari. Aðrir leikmenn voru að spila ágætlega, er það ekki annars Heimir....... 

Spurning að félagar Nafnlausa golfélagsins heimti að Maggi fari í lyfjapróf. Bara til að sýna fordæmi fyrir önnur aðildarfélög PGA og GSÍ. Það er ekki eðlilegt að maðurinn skuli spila einusinni í viku og vera trekk í trekk undir pari vallar.

Eftir næstu umferð er deildarkeppni lokið og úrslit hefjast. Eins menn muna þá eru reglurnar þannig að þeir sem eru í sæti 1-4 sitja hjá í fyrstu umferð en sæti 5-12 spila um að komast í 8 manna úrslit og mæta þá þessum "snilldargolfurum" sem voru í sæti 1-4. Hinir spila um sæti 9-12.

Enn er ekki búið að skipa í lokahófsnefnd. Svo virðist sem að enginn þori að taka það að sér eftir frábæra veislu Benna Hauks síðasta haust. Spurning að byrja frá grunni á pylsu og kók og reyna síðan að toppa það á næsta ári.


11.Leikdagur

Spilað verður á Korpunni.

Við eigum rástíma klukkan 17:30 og 17:40.

Svo virðist sem að það munu bara 6  félagsmenn mæta til leiks þar sem 1/3 mannskapsins er erlendis.

Það stefnir í það að Ingi Ólafs verði deildarmeistari þetta árið nema hægt nema verði að kæra hann fyrir að droppa vitlaust og vísa honum úr keppni. Er verið að fara yfir allar myndbandstökur sem til eru af þeim hringjum sem búið er að spila.

Síðasta umferð verður síðan þriðjudaginn 7. ágúst. Það er möguleiki að spila aukaumferð fram að þeim tíma. Enn eins og menn muna þá verða að minnstakosti tveir félagsmenn Nafnlausa golffélagsins að spila saman.


Höfundur

Nafnlausa Golffélagið
Nafnlausa Golffélagið

Nafnlausa Golffélagið er samasafn snilldargolfara sem hafa það sem sitt eina markmið í lífinu að verða betri golfarar sama hvað það kostar.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband