Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Þriðja umferð í Grafarholti

Þriðja umferð fór fram í Grafarholtinu á miðvikudaginn

Illa gekk að fá samhliða rástíma þ.a. sumir spiluð snemma um daginn og aðrir seint. Veðrið var flott og mæting góð.  Fyrsta holl fór út snemma og þar vann Ívar Magga á 17, eftir spennandi leik. Hinn leikurinn í hollinu varð aldrei spennandi enda Aron ekki vanur að spila svona snemma dags. Emil vann þann leik á 14. braut.

Í næsta holli voru þeir Sammi og Gulli. Þar hafði Gulli betur. Einnig voru þar Óli og Denni og greinilega um mjög jafnan leik að ræða og endaði hann í jafntefli.

Frekar seint fóru svo Gummi, Siggi og Heimir út ásamt gesti. Gummi og Siggi áttu kappi og vann Gummi. Báðir áttu að mér skilst slaka leiki og spurningin var víst ekki hvor myndi vinna, heldur hvor myndi tapa.

Formaðurinn


Önnur umferð í Grafarholti

Önnur umferð var spiluð  í Holtinu í gær. Mæting var góð, 11 af 12 og einn gestaspilari. Úrslit urðu sem hér segir:

Aron vann Óla

Maggi vann Emil

Ívar vann Inga

Sammi vann Heimi

Gulli vann Denna

Sjá má stöðun á Umferðir og úrslit 2010

Munið, þeir sem sjá um bókun fyrir næsta miðvikudag eru Ívar, Heimir og Gulli (bókað skv Bókun rástíma 2010)

Bókun þarf að eiga sér stað kl 8:00 á mánudaginn. Spilað verður í Grafarholtinu

 


Fyrsta umferð á Skaganum

Fyrsta umferð í Nafnlausa golffélaginu var spiluð á Skaganum síðasta þriðjudag.

Alls mættu 9 leikmenn úr félaginu ásamt tveimur gestaspilurum

Aðstæður voru frekar slæmar, ringdi allan tímann

Úrslit má svo sjá á fastri síðu (vinstra megin á bloggsíðunni)

Sjá:

http://nafnlausu.blog.is/blog/nafnlausu/entry/1054803


Nýir meðlimir í hópinn

Nokkrar mannabreytingar hafa orðið í hópnum okkar þetta árið. Í fyrra hætti Jóhann og núna í maí sá Benni fram á að geta ekki spilað með okkur í sumar.  Ég vil þakka þeim fyrir spilamennskuna síðustu ár og þá sérstaklega Benna en hann er búin að vera lengi með okkur.  Að sjálfsögðu er þeir alltaf velkomnir að spila með hópnum þegar laust er.

En maður kemur í manns stað. Tveir mjög svo áhugasamir og öflugir golfarar koma sterkir inn en það eru þeir Ívar Harðarson, með forgjöf eitthvað undir 10, og Sigurður Stefánsson með forgjöf 15,7.

Bjóðum við þá velkomna og hlökkum til á að takast á við þá á golfvellinum

Emil


Fundur á Kaffi Milano

04.05.2010

Mættir:

Aron Hauksson
Emil Hilmarsson
Guðlaugur Einarsson
Guðmundur Friðbjörnsson
Magnús Ingi Stefánsson
Ólafur Hafsteinsson
Samúel Ingi Þórarinsson
Benedikt Hauksson

Fjarverandi:
Heimir F. Hálfdanarson
Ingi Ólafsson
Sveinn Ingvarsson

Skipan í stöður og nefndir:
Formaður:
Sá sem ræður
Emil Hilmarsson
Varaformaður:
Sá sem ræður ekki
Magnús Ingi Stefánsson
Shootout:
Hið árlega bindinismót sem fáir eru til frásagnar um
Ingi Ólafsson
Burgerin:
Skipulag á hinu árlega móti sem enn hefur ekki verið haldið þar sem planað er að spila jafnvel 36 holur með burger á milli.
Aron Hauksson
Lokahóf:
Undirbúningur og skipulag lokahófs Nafnlausu í lok leiktíðar
Guðmundur Friðbjörnsson og Emil Hilmarsson
Ferðanefnd:
Undirbúningur og skipulagning útilegu með fjölskyldu félag í sumar
Guðmundur Friðbjörnsson
Bikarar:
Grafa upp bikara fyrri ára og skrásetja í sögu félagsins. Skilgreina og kaupa verðlaunapeninga/bikara fyrir lokahóf
Magnús Ingi Stefánsson

Niðurstöður fundar
Sama leikfyrirkomulag verður og var á síðasta ári, þ.e. Holukeppni ásamt Punktakeppni en leikdagar hafa verið færðir á miðvikudaga. Fyrsta umferð verður þó leikin á Skaganum á þriðjudaginn og áætlaður fyrsti rástími kl 17:40.

Annars eru aðrar niðurstöður fundarins eftirfarandi.
  • Leikdagar verða á miðvikudagar og áætlaður fjöldi leikdaga er 17 (til 15 sept).  Áætlað er að hefja leik milli 16:50 og 17:30 í sumar
  • Sigurvegari Holukeppninnar verður krýndur Meistari Meistaranna 2010 en sigurvegari Punktakeppninnar verður krýndur Deildarmeistari 2010.
  • Spilaðar verða 11 leikir í Holukeppni, allir við alla. Aðeins heimilt að leika á miðvikudögum en ákvörðun verður tekin af formanni þegar líða tekur á sumarið hvort frestaðir leikir megi spilast á öðrum dögum, ef mikið er um frestanir. Einnig getur formaður sett á aukaleikdaga.
  • Punktakeppnin er spiluð samhliða Holukeppni, sem þýðir að menn verða að klára hverja holu út til að fá punkt. Ekki er hægt að gefa pútt í Punktakeppni.  Bestu 10 hringir í Punktakeppni gilda í lokin.  Punktakeppni má aðeins spila á skilgreindum leikdögum (þriðjudögum).
  • Tilskilinn leikjafjöldi fyrir sumarið 2010 er:
    • 11 leikir í holukeppni
    • 10 leikir í punktakeppni
  • Settir eru mælisteinar fyrir fjölda leikja þ.a. menn þurfa að ná tilskildum fjölda leikja á ákveðnum dagsetningum
    • Klára þarf a.m.k. 5 leiki fyrir lok júní
    • Klára þarf a.m.k. 7 leiki fyrir lok júlí
    • Klára þarf a.m.k. 9 leiki fyrir lok ágúst
  • Fyrri reglur um Gula spjaldið er í fullu gildi. Leikmaður fær gult spjald ef hann nær ekki tilskildum leikjafjölda. Annað gula spjaldið þýðir rautt spjald, þ.e. leikmaður fær ekki að spila næsta tímabil á eftir sem meðlimur með Nafnlausa Golffélaginu.
  • Nýir meðlimir sem teknir eru inn í félagið eru á svokölluðu skilorði, þ.e. ef þeir mæta ekki skv. reglum félagsins þá fá þeir ekki að vera með næsta ár á eftir.
  • Greidd voru atkvæði um nýjan meðlim í félagið. Hann er Ívar Harðarson, fgj. eitthvað undir 10.  Hann var samþykktur samhljóða.
  • Félagsgjöld fyrir leiktímabilið 2010 voru ákveðin 10.000 kr. Þessar tekjur verða notaðar fyrir Lokahóf og verðlaunapeninga. Formaður mun senda út rukkun og halda utanum  greiðslur.
  • Þar sem bókun rástíma verður væntanlega erfið í sumar var ákveðið að mynda þrjá bókunarhópa.  Meðlimir hvers hóps sjá um að bóka „sína“ menn. Þeir koma sér upp reglu hvernig bókun færist á milli mann. Hóparnir eru eftirfarandi:
    • Hópur 1 (kl 16:50): Emil, Maggi, Gummi, Ívar
    • Hópur 2 (kl 17:00):  Aron, Heimir, Denni, Óli
    • Hópur 3 (kl 17:10):  Gulli, Sammi, Ingi, Benni
  • Hægt er að skrá rástíma degi fyrir leikdaga, þ.a. kl 8:00 á þriðjudegi er hægt að byrja að bóka miðvikudaginn. Ef ekki er annað ákveðið skulu þessir rástímar bókaðir.
    Formaður ákveður hvenær og hvort fyrsti rástími færist framar eða aftar og tilkynnir þá um slíkt. Hinir rástímar færast þá samhliða. Ef hópur nær ekki að bóka á skilgreindum rástíma, skal reyna að bóka í næsta lausa tíma þar á eftir (17:20 eða 17: 30)
    Þegar hópur hefur náð að bóka sinn hóp skal hann senda póst á alla um staðfestan tíma. Þegar búið er að staðfesta alla tíma þá sendir formaður upplýsingar um það hverjir eigi leik í holukeppninni
  • Afbókanir skulu sendar svo fljótt sem það er ljóst og eigi síðar en kl 12:00 á leikdag. Formaður sendir þá tilkynningu til golfklúbbs um afskráningu eða biður viðkomandi hóp um að sjá um tilkynningu til klúbbs um afskráningu.
 

Höfundur

Nafnlausa Golffélagið
Nafnlausa Golffélagið

Nafnlausa Golffélagið er samasafn snilldargolfara sem hafa það sem sitt eina markmið í lífinu að verða betri golfarar sama hvað það kostar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband