Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2012

11. umferð - Korpan

11. umferð var spiluð á Korpunni síðasta þriðjudag. Veðrið gott að venju, nánst logn en kólnaði aðeins þegar líða tók á kvöldið. Mæting var 100% og komust færri að en vildu.

Leikir kvöldsins fóru þannig:

Í fyrsta holli vann Benni Heimi og Óli sigraði Gulla.

Í öðru holli voru leikar nokkuð jafnir en þar hafði Maggi sigur á Sigga en þeir spiluð báðir á 37 punktum sem var einnig besta skor kvöldsins. Emil vann svo Sigþór

Í loka hollinu hafði Aron betur á móti Inga og Ásgeir vann Hjört.

Einn örn leit dagsins ljós í þessari umferð en Siggi náði erninum á 11 holu eftir glæsilegt innáhögg af 200 metrum og eitt pútt. Maggi var svo mjög nálægt því að taka annan örn í hollinu. Hann sló teighöggið á 18. inn á flöt og var um 1,5m frá pinna en rétt missti púttið.

Staðan í punkta og holukeppninni hefur líklega aldrei verið jafnari. Á toppnum í holukeppninni er Óli með 6,5 vinninga og Aron er þar á hælum hans með 6 vinninga en á einn leik til góða. Í punktakeppninni er baráttan gríðarlega spennandi en þar eru Siggi og Aron efstir með 32,3 punkta að meðaltali. Alls eru 8 menn með yfir 30 punkta að meðaltali þ.a. allt getur gerst þar sem nóg er eftir af umferðum og þá fara slæmu leikirnir að detta út.

Úrslit má sjá á úrslitasíðunni að venju.

Formaðurinn


10 umferð í Holtinu

Tíunda umferð var spiluð í Holtinu í gær í frábæru golfveðri, einu því besta í sumar.

Góð mæting var en alls mættu 11 úr Nafnlausa golffélaginu og einn fyrrverandi félagi, Sammi, fyllti upp í síðasta hollið.

Leikar fóru annars þannig:

Aron sigraði Hjört og Emil vann Magga í fyrsta holli

Í öðru holli marði Benni sigur á Sigga og Heimir vann Inga

Í loka hollinu spiluðu vinnufélagrnir Óli og Ásgeir og hafði Óli sigur þar.

Gulli var stakur en átti besta skor í punktum talið ásamt formanninum, eða 39 punkta.

Nú eru búnar 10 umferðir og men búnir að spila 6-8 leiki í holukeppninni. Þar þurfa allir að spila við alla þ.a. um er að ræða 12 leiki. Við erum í nokkuð góðum málum með mætingu og eru 9 leikdagar eftir ef við gerum ráð fyrir að spila fram í miðjan september.

Sjá annars stöðu á úrslitasíðunni

Formaðurinn


Höfundur

Nafnlausa Golffélagið
Nafnlausa Golffélagið

Nafnlausa Golffélagið er samasafn snilldargolfara sem hafa það sem sitt eina markmið í lífinu að verða betri golfarar sama hvað það kostar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband