Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

3. Leikdagur

Þá er 3. leikdegi lokið og úrslitin komin inn á sinn stað.

Spilað var á Korpunni þriðjudaginn 29. mai í fínu veðri, dálítill vindur á fyrri 9 og það beint á móti, en slapp allt saman til, flestir að spila þokkalega.

Flatirnar á Korpunni mættu nú aðeins fara að taka við sér, spáin er góð fyrir næstu viku og því ætti þetta allt að koma.

Formaðurinn.

 


2. leikdagur

Nú eru úrslit vikunnar komin inn, sjá Úrslit hér til vinstri.

2.Leikdagur

Rástímar fyrir daginn í dag eru  17:00 - 17:10 og 17:20. Við ætlum að spila á Korpu í blíðskaparveðri.

Höfuðborgarsvæðið
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: V-læg átt, 3-8 m/s og stöku él eða skúrir. Hiti 2 til 7 stig. Spá gerð 22.05.2007 kl. 06:41

Þetta getur ekki orðið betra.

Menn geta séð stöðuna eftir 1. leikdag með því að smella á Úrslit 2007 undir Síður. Það er greinilegt að forgjarfarbreytingar hafa verið að stríða mönnum og voru sumir með "mun" fleiri punkta enn þeir reiknuðu í upphafi.

Eins og fram kom í pósti frá formanninum þá á eftir að skipa í lokahófsnefnd. Eins og venjulega þá verður örugglega slegist um þetta embætti eins og öll önnur. En ég við biðja menn að sýna stillingu og koma sínum umsóknum áleiðis til varaformanns.


Nýja forgjöfin

Meira bullið með þessi forgjafarmál hjá GR. Ég hef verið að reyna að skrá inn hringinn frá því síðasta þriðjudag. Skv nýrri forgjöf  (19) hefði ég átt að lækka um 0,3, skv punktafjöldi upp á 37 punkta. Þegar ég skrái þetta inn þá fæ ég forgjöf 17 og 35 punkta. Hélt að þetta væri galli í síðunni, þar sem unnið hefur verið  að uppfærslu síðunnar.

Ég tók svo þátt í móti á Hvaleyrinni í dag með nýju forgjöfinni, að ég hélt. Skorið er svo sem ekki í frásögur færandi, enda skipti ekki máli í þessu tilfelli. Ég sé svo þegar ég kem inn að ég er með gömlu forgjöfina. Þá höfðu Keilismenn ákveðið  að taka ekki marka á nýrri forgjöf GR-inga og færa inn úrslit skv þeirr gömlu. Mér skilst að þetta sé orðið eitthvað hitamál milli klúbbanna. Hvers eigum við að gjalda? Verðu maður að halda úti tveimur forgjöfum, einni fyrir GR velli og annarri fyrir aðra velli?  Hvaða bull er í gangi.

Sjá spjall á kylfingur.is og færslu frá 18.05, Tilkynning frá mótanefnd Keilis á heimasíðu Keilis


1. leikdagur

Þá er fyrsti leikdagur að baki, spilað var í Grafarholtinu, rástímar 17:00, 17:10 og 17:20, veðrið var ekkert til að hrópa húrra fyrir, talsverður vindur og smá skúrir með.  Völlurinn er fínn miðað við árstíma, hann lofar góðu, vantar aðeins meiri hlýju og smá rigningu í þetta þá kemur þetta.

Mæting var góð í dag, 10 mættir, Aron, Denni, Maggi, Heimir, Gulli, Sammi, Benni, Emil, Óli, Ingi.

Úrslit eru í vinstri dálki.

Menn eru svo beðnir um að lýsa skemmtilegum atriðum sem áttu sér stað í hollunum.

Formaðurinn

 


Ný forgjöf

Nú er GR búið að uppfæra forgjöf meðlima GR samkvæmt tilkynningu frá því í gær. Allavegana er búið að hækka mig upp um 20%.  Þetta er væntanlega í samræmi við getu þ.a. þetta er líklega eðlilegt. Þá er bara að keyra hana niður í sumar, ekki spurning. Hvað finnst mönnum um þetta?

Emil


Kynning á félögum Nafnlausa Golffélagsins

Þar sem það eru ekki nema 6 dagar í fyrstu umferð mótsins þá er við hæfi að kynna meðlimi félagsins.

Þetta er bara það sem þekkist hjá öllum stórklúbbum eins og okkar um alla evrópu.

 

aron

 Aron Hauksson er formaður félagsins og aðaldriffjöður.

Það er spurning hvað gerist hjá honum í sumar. Aron er búinn að vera í æfingarbúðum á Flórida. Líklega fáir í félaginu sem hafa lagt eins mikið í undirbúningstímabilið bæði fjárhagslega og andlega. Þá hefur Aron breytt um mataræði til að koma enn betur undirbúinn fyrir leiktímabilið og verður áhugavert að sjá hvort allt þetta skili sigrum í sumar.  

 

 

benni

Benedikt Hauksson er ókrýndur veislugjafi félagsins.

Benni mun líklega vinna ófáa leiki í sumar með því að hóta að birta myndir af mönnum á lokahófi félagsins síðasta haust. En þar hélt hann eina glæsilegustu veislu í manna minnum. En það er ekki spurning á Benni á eftir að taka fleiri sigra vegna hæfileika sinna sem golfari. Þetta tvennt gæti verið hættuleg blanda í sumar.

 

denni

Sveinn Ingvarsson stjórnarformaður Burgernefndarinnar ásamt að sitja í stjórn Shootout nefndarinnar. 

Denni er einn af þessum leikmönnum sem getur komið á óvart í sumar og má jafnvel segja að hann sé X-factor því maður veit aldrei hvað gerist hjá honum. Margir hafa fallið fyrir sakleysissvipnum og ekki áttað sig á því að hafa tapað leiknum fyrr en á 18 gríni.

Stórhættulegur leikmaður.

emil

Emil Hilmarsson formaður ferðanefndarinnar.

Einn af þessum leikmönnum sem kemur alltaf á óvart með leik sínum. Býr yfir miklu jafnaðargeði á vellinum, sem oftar en ekki hefur reynst andstæðinum hans skeinuhætt. Hefur einnig sýnt gífurlega skipulagshæfileika í ferðum félagsins sem formaður ferðanefndar. Heyrst hefur að Emil ætli sér stóra hluti í sumar og hefur hann hæfileikana til að standa við þau stóru orð.

 

gulli

Guðlaugur Einarsson Wild man

Gulli er óútreiknalegur golfari, því andstæðingar hans vita ekki alveg hvar þeir hafa hann. Högglengd hans er mikil þó svo að kúlan fari ekki alveg beint þá flýgur hún mjög langt. Einn af þessum leikmönnum sem gæti náð mjög langt.

 

 

heimir

Heimir Freyr Hálfdánarson túlkur félagsins.

Heimir er mjög sterkur einstaklingur sem hefur mátt þola ýmislegt á sínum golfferli. Hann hefur ítrekað komið "aftur" og unnið leiki sem hefðu átt að vera tapaðir. Það verður gaman að fylgjast með Heimir í sumar. Þeir sem hafa áhuga geta skráð sig á lista til að vera kaddý fyrir Heimir. 

 

ingi

Ingi Ólafsson Ironman

Ingi hefur gífurlegt keppnisskap og gjörsamlega neitar oft að viðurkenna að holan sé töpuð.  Þetta sama skap hefur fært honum nokkra sigra í gegnum tíðina. Mjög rólegur og yfirvegaður á leikvelli. Ingi er áhugaverð blanda af keppnisskapi, rólegheitum og yfirvegun. Það gæti allt gerst hjá honum í sumar.

 

ingithor

Ingi Þór Hermannsson stúdentinn

Ingi Þór kemur til með að vera stóra spurningamerkið í sumar, ekki vegna hæðar sinnar. Heldur vegna þess að hann settist á skólabekk fyrir nokkru og er að klára þann pakka. Það þarf ekkert minna en MBA nám til eiga möguleika á að verða formaður félagsins. Hann hefur verið á hraðri niðurleið forgjafalega séð síðustu ár.

Spurning hvað gerist í sumar.

maggi

Magnús Ingi Stefánsson Varaformaður, situr í stjórn ferðanefndar

Maggi er líklega sá eini sem hefur hækkað í forgjöf á milli ára. Hann er mjög stórhuga og ætlar sér langt í golfinu en hefur einhvern veginn ekki náð að fylgja því eftir. Stefnir á túr eldri kylfinga (LEK) og ætlar sér stóra hluti þar.

Já, hann er alltaf með svokallaðann farandbikar félgsins.

 

oli

Ólafur Hafsteinsson Fylkismaður Nr.1

Óli hefur gífurlega reynslu sem íþróttamaður sem hefur skilað flestum hans sigrum í gegnum tíðina. Hann veit ekki hvað hræðsla er á leikvelli og tæklar allar aðstæður eins. Hans stíll er ekki varnarsinnaður heldur ávallt sókn. Þetta sumar gæti orðið áhugavert hjá Óla þar sem hann mætir til leiks með nýtt Ping sett.

 

sammi

Samúel Ingi Þórarinsson Grafískur hönnuður félagsins

Sammi á heiður af lógói félagsins, snilldarmerki. Fimm tré Samma er alltaf jafn ógnvekjandi og eru ekki allir meðlimir sáttir við það. Þar sem hann slær jafnlangt með því og hinir með driver. Sammi fór holu í höggi í fyrra á Korpu.

 

 

svenni

Sveinn Ásgeir Baldursson Yfirstílisti og grínari

Svenni er snilldargolfari og margt annað til lista lagt en bara að spila golf. Hann er líklega sá golfari í hópnum sem notar sálfræði markvisst á andstæðinga í upphafi leiks. Líklega eru fáir eða enginn í hópnum sem á jafnmargar medalíur, að hans sögn. Þá eru fáir jafn glæsilegir á velli og Svenni og það eitt á eftir að skila honum nokkrum sigrum í framtíðinni.

Gæti orðið hans sumar.

 

 

 

 

 

 


Niðurstaða æfingahrings

Þá er æfinga hringnum lokið og aðal fundinum.

Blíðskaparverður var í Grafarholtinu í gær og stóðust engar veðurspár í þetta skiptið.

Heyrðist á mönnum að spilamennskan hafi verið ágæt hjá flestum, gaman væri að fá comment hvernig mönnum gekk.

Ánægjulegt var að allir meðlimir mættu til leiks í þetta skiptið og gaman væri að endurtaka það sem oftast.

Aðalfundurinn var haldinn eftir spilamennskuna og kemur ítarleg greinargerð frá ritara fundarins síðar.

Sjáumst svo hressir í sumar.

Formaðurinn.

hópurinn 2007


Æfingarhringur.

Sælir félagar

Þá er komið að æfingahringnum hjá okkur, hann mun EKKI telja í mótinu, en notum hann til að koma okkur saman og verðum svo með aðalfundinn á eftir, þar sem línurnar verða lagðar.

Stefnan er að spila á morgun þriðjudag, þar sem einhverjir vilja horfa á æfingarleikinn sem er á miðvikudaginn, ég mun reyna að fá rástíma í Grafarholtinu.

Í ljósi þess hvað bloggið hefur ekki verið að gera sig síðustu vikurnar ásamt því að menn hafa kvartað aðeins undan því að sumir vinnustaðir eru lokaðir á blogg, ásamt því að sumir hafa kvartað yfir því að hafa ekki þekkingu á bloggi þá held ég að best sé að menn svari bara tölvupóstunum og ritstjórinn mun svo setja inn það sem skiptir máli inná bloggið, til frekari varðveislu.

Ég vil því biðja menn um að svara þessum pósti um það hvort þeir komist á morgun, ég mun reyna að fá rástíma uppúr klukkan 5, má því gera ráð fyrir að fundurinn verði um 9:30.

Í fyrramálið mun ég senda út nánari staðfestingar á tíma og stað.

Formaðurinn 


Fyrsti leikdagur

Þá er komið að fyrsta leikdegi.

Vegna leiks mu-cfc, næstkomandi miðvikudag 9. mai þá færum við til leikdaginn og spilum þriðjudaginn 8. mai.

 Þennann leikdag spilum við æfingarhring og telur hann því í mótinu okkar, í beinu framhaldi af spilamennskunni þá verður aðalfundurinn haldinn þar sem við munum leggja línurnar fyrir sumarið.

Ég mun bóka rástíma annaðhvort á Korpunni eða Holtinu, þar sem það opnar um helgina, grunar samt að Korpan sé aðeins betri.

 Verðum í bandi í næstu viku.

Formaðurinn.


Höfundur

Nafnlausa Golffélagið
Nafnlausa Golffélagið

Nafnlausa Golffélagið er samasafn snilldargolfara sem hafa það sem sitt eina markmið í lífinu að verða betri golfarar sama hvað það kostar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband