Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2012

4. umferð í Holtinu

4. umferð var spiluð í Grafarholtinu síðasta þriðjudag. Veður var ágætt en batnaði sem á leið leikinn og var orðið frábært spilaveður í lokin. Mæting var mjög góða, aðeins vantaði Benna.

Leikar fóru annars þannig:

Aron vann Heimi

Ingi og Ásgeir skildu jafnir (að ég held) 

Sigþór vann Magga 3/2

Hjörtur vann Gulla 2/1

Óli vann Sigga 2/0

Jói vann Emil 2/1

Sjá nánar úrslit og stöðu á úrslitasíðunni. Munið svo að kommentara á blogginu!

Næsta umferð er plönuð á Skaganum eftir viku

kv, Formaðurinn 


3. umferð í Grafarholti

Þriðja umferð var spiluð í Grafarholti í gær.

Veður var þokkalegt, blés nokkuð þétt að austan sem kom sér t.d. vel á 8. 9, 10 og 12 (fyrir suma). Kólnað soldið með kvöldinu.

Alls voru spilaðir 5 leikir og urður úrslit sem hér segir

Heimir vann Ásgeir á 14. að mér skilst, eftir frábært golf

Maggi vann Óla eftir mjög góða spilamennsku (að eigin sögn)

Sigg sigraði Gulla 3-1 (eftir að Gulli kláraði alla boltana sína á 14.)

Emil hefndi fyrir tapið á Sweetwood í Englandi og vann Aron á 18.

Sigþór og Ingi skildu jafnir á flottu skori (38 og 36 punktum)

Hring dagsins átti Heimir er hann spilaði á litlum 44 punktum. Glæsilegt Heimir. Ísskáps dvölin síðasta þriðjudag hefur greinilega skilað sér.

Sjá Úrslitasíðu

kv, Emil


2. umferð í Grafarholti

Önnur umferð hjá okkur var spiluð í Grafarholtinu þriðjudaginn 8 maí. Góð mæting var en alls mættu 11 og vantaði aðeins 2 spilara. Þeir voru víst eftir sig eftir golferðina til London þó aðrir sem fóru í sömu ferð hafa mætt  ;-)

Annars var spilmennskan mjög góð, flestir yfir 30 punktum. Siggi átti besta skor í punktum dagsins, alls 37 punkta.

Annars fóru leikar þannig:

Siggi - Sigþór: Jafnt

Gulli - Emil: jafnt

Ásgeir vann Benna

Ingi vann Jóa

Hjörtur vann Heimi

Óli spilaði stakur

Sjá nánar á Úrslitasíðu

Veðrið var frábært alveg fram undir 16 braut en þá fór að snjóa og flatirnar urðu hvítar um leið og teigarnir sleipir. Menn klárðuð samt að spila þó sumir kvörtuðu meira en aðrir þrátt fyrir topp skor. Þó ber að hafa í huga að sömu aðstæður voru hjá öllum þeim sem spiluðu holukeppni.

IMG00583 20120508 2106

Jói að pútta á 16. flöt

kv

Emil


Afmælisferð Nafnlausa Golffélagsins 2012

10 ára afmælisferð Nafnlausa Golffélagsins var farin í byrjun maí. Alls fóru við 8, þar af 5 frá Nafnlausum og 3 gestaspilarar. Flogið var til London og gist á Lingfield Park Marriott Hotel & Country Club sem er rétt sunnan við London. Topp aðstaða með öllu. Þar voru spilaðir 4 hringir. Einnig var farið á Sweetwoods Park Golf Club og þar spilaðir 3 hringir. Báðir vellirnir voru mjög góðir, sérstaklega Sweetwood völlurinn en hann var alveg einstaklega fallegur. Þó vellirnir hafi verið nokkuð blautir vegna langvarandi rigninga í Bretlandi þá voru þeir í mjög góðu standi og skemmtilegir.

Hópurinn var gríðarlega vel skipaður og skemmtilegir golfarar. Ekki nóg með að góðir golfarar væru hér á ferð þá skartaði hópurinn tveimur af bestu dómurum landsins í golfi. Ferðin var því ekki bara skemmtileg heldur lærðu menn ýmislegt nýtt um regluheim golfíþróttarinnar.

Settar voru upp tvær formlegar keppnir að hætti Nafnlausu en það var holukeppni (allir við alla) og punktakeppni (best af 5). Sigurvegarar voru Aron í holukeppni og Stein í punktakeppni. Að sjálfsögðu var svo Guinness keppni í hverju holli.

Hopurinn

Guðbrandur, Maggi, Hjörtur, Steini, Sammi, Aron, Siggi, Emil.

Sjá fleiri myndir undir London 2012.

Formaðurinn þakkar spilafélögunum fyrir vel heppnaða ferð og þá sérstaklega stofnanda og fyrrverandi formanni fyrir frábært skipulag og vel valda velli.

Emil


Aðalfundur Nafnlausa Golffélagsins 2012

Aðalfundur Nafnlausa Golffélagsins var haldinn á Korpunni 1. maí 2012

 

Mættir:

Aron Hauksson

Benedikt Hauksson

Emil Hilmarsson

Guðlaugur Einarsson

Magnús Ingi Stefánsson

Ólafur Hafsteinsson

Sigurður Stefánsson

 

Fjarverandi:

Heimir Hálfdanarson

Ingi Ólafsson

Sigþór Magnússon

 

Stjórn

Óbreytt stjórn er þetta árið

Formaður og gjaldkeri: Emil Hilmarsson

Varaformaður: Magnís Ingi Stefánsson

Ritari: Aron Hauksson

 

Árshátíðarnefnd

Skipulaga lokahófs félagsins í lok leiktíðar

Aron Hauksson

Guðlaugur Einarsson

 

Leikjanefnd

Umsjón með „Shootout“  og/eða „útilegu“ móti

Magnús Ingi Stefánsson

Sigurður Stefánsson

 

Inntaka nýrra félaga

Þar sem tveir félagar hafa hætt í félaginu vara ákveðið að bjóða 3- 4 nýjum félögum að ganga í hópinn. Þá gæti hópurinn orðið allt að 14 manns. Þegar hafa 3 óskað eftir inngöngu en þeir eru:

Jóhann Másson

Ásgeir Ásgeirsson

Hjörtur Þorgilsson

 

Leikfyrirkomulaga

Sama leikfyrirkomulaga verður í ár og undanfarin ár. Keppt verður í Holukeppni þar sem allir spila við alla og Punktakeppni þar sem bestu 10 hringir sumarsins gilda.

 

Rástímabókanir verða í umsjón ritara félagsins og skipar hann menn, eins og hann telur þörf, í hvert skipt til að sjá um bókun rástíma fyrir næsta leikdag. Bóka þarf rástíma kl 8:00 (á slaginu) til að ná tíma á þriðjudegi).

Bókuð verða þrjú holl (fyrir 12) og þeir sem fyrstir melda sig inn hafa forgang. Formaður stillir upp leikjum í Holukeppni. 

 

Formanni er heimilt að áminna félagsmenn ef þeir eru ekki búnir að ná tilskildum lágmarksfjölda leikja í Holukeppni í lok hvers mánaðar og ef um mjög lélega mætingu er að ræða og að það tefji leik annarra þá er heimilt að vísa viðkomandi úr Holukeppninni. Leikmanni er þó heimilt að leika áfram í Punktakeppninni.

 

Leikdagar

Þeir verða á þriðjudögum eins og undanfarin ár. Formaður félagsins getur þó sett á auka leikdaga og telja þeir þá eins og aðrir leikdagar. Aðeins er leyfilegt að telja punkta til keppni í Punktakeppni á skilgreindum leikdögum. Leikir í Holukeppni geta farið fram á öðrum dögum ef menn koma sér saman um það. Slíkt þarf þó að tilkynna fyrirfram til formanns.

 

Félagsgjöld

Samþykkt var að félagsgjöld fyrir árið 2012 yrðu 12.000 krónur

Félagsgjöld þarf að vera búið að greiða fyrir lok mái 2012

 

Fundi slitið

1. maí 2012

Emil Hilmarsson

 

 

 

 


Fyrsti leikdagur - 1. maí 2012

Þá er vertíðin hafin og fyrsta leikdegi í Nafnlausa Golffélaginu lokið.

7 meðlimir mættu og 4 gestir. Úrslit urðu sem hér segir:

Aron vann Magga

Óli vann Emil

Benni vann Gulla

Siggi sat hjá í holukeppninni.

Flesta punkta dagsins átti Óli, alls 31


Höfundur

Nafnlausa Golffélagið
Nafnlausa Golffélagið

Nafnlausa Golffélagið er samasafn snilldargolfara sem hafa það sem sitt eina markmið í lífinu að verða betri golfarar sama hvað það kostar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband