Leita í fréttum mbl.is

13. umferð

13. umferð var spiluð í Grafarholtinu í gær. Veðrir var mjög gott til að byrja með en kólnaði ansi mikið þegar fór að blása. Einni var orðið ansi dimmt undir lokin, sérstaklega hjá þeim sem fóru síðastir út. Ljóst er að við verðum að byrja eitthvað fyrr á næsta þriðjudag.

Full mæting var í annað sinn á þessu sumri. 5 leikir voru spikaðir í holukeppninni og urðu úrslit þessi:

Gummi-Siggi : skildu jafnir

Óli-Benni : Óli vann 1-0

Maggi-Aron : Maggi vann 3-2

Emil-Ingi : Emil vann 6-5

Heimir-Sigþór: Sigþór vann

Hæsta skor dagsins var 38 hjá formanninum.

Uppfærð úrslit og stað er komin inn á úrslitasíðuna.

Emil

 


Þorlákshöfn - 12. umferð

12. umferð var spiluð í Þorlákshöfn í fínu veðri. Flatirnar voru mjög flottar en völlurinn erfiður að venju, enda sást það á skori dagsins en besta skorið var hjá, 32 punktar og eini leikmaðurinn sem náði að skora yfir 30 punktum.

Alls mættum við 7. Úrslit urðu annars þau að Gulli vann Gumma, Óli vann Inga og Benni sigraði Samma.

Úrslit hafa verið uppfærð á úrslitasíðunni

Fomaðurinn


11. umferð í Grafarholtinu

Þriðjudaginn 2. ágúst var 11. umferð spiluð í Grafarholtinu. Mæting var mjög góð, aðeins vantaði Heimi. Veðrið var líka fínt. Flesta punkta fékk Aron eða alls 37 og fékk lækkun, til lukku með það.

Í fyrsta ráshóp spiluðu Gummi og Aron og vann Aron 5/3. Þart spiluðu einnig Óli og Siggi en þar hafði Óli sigur á síðustu holunni

Í öðrum ráshóp vann Ingi Samma 2/1 og Gulli hafði sigur á Benna.

Í loka hollinu var formaðurinn stakur en Maggi og Sigþór áttu leik. Þar hafði Sigþór sigur á síðast púttinu. Maggi þurfti að setja niður fyrir pari en missti það í skolla. Annars voru þeir iðnir við að setja niður fugla en þeir voru allnokkrir. Til að topp það náði Maggi einum glæsilegum og öruggum erni á 12.

Uppfærð staða er komin inn og nú fara slæmu leikirnir að detta út hjá þeim sem náð hafa 10 hringjum. Inn á punktaskjalið eru þeir punktar sem falla út merktir með rauðu og þeir punktar sem detta út næst (ef spilað er á betra skori) merktir með gulu.

Munið svo að blogga um leikina, menn hafa verið frekar slakir í því.

Formaðurinn


10. umferð á Korpunni

10 umferð var spiluð á Korpunni fimmtudaginn 28. júli eftir að þeirri umferð var frestað vegna veður síðast þriðjudag (þó nokkrir hafi þó spilað 12 holur í blíðunni). 9 meðlimir mættu ásamt einum gesti.

Veðirið var mjög gott seinni 9 þó aðeins hafi ringt á þeim fyrri. Annars urðu úrslitn þau að Óli vann Magga á síðstu holunni Siggi vann einnig Aron (ekki ljóst hvernig). Báðir leikirnir í seinasta hollinu unnust á 17, en þar vann Sigþór Emil og Heimir vann Samma. Besta skor dagsins var hjá Sigþóri eða 36 punktar.

Nú eru búnar 10 umferðir af áætluðum 19 og línur farnar að skýrast. Siggi er efstur í holukeppninni en í punktakeppninni er Aron efstur en fast á hæla hans koma Emil og Siggi.

Sumir eru búnir með fleiri leiki en aðrir. Þeir sem eru með fæsta leikina og þurfa að  fara að bæta í eru Ingi, Benni og Gummi sem eru með 5 leiki og svo Maggi með 6. Aðrir eru með meira

Ný staða er komin ínn á úrslitasíðuna

Formaðurinn 


Grafarholtið 26.07

Umferðin í dag var blásin af þar sem vind hreyfði aðeins og smá raki var í loftinu. Það hindraði þó ekki leikjahæstu menn til að mæta (sem ekki hafa misst úr leik í sumar). Siggi og formaðurinn mættu sjóðheitir á teig kl 18:00 í Grafarholtinu. Vindur var ca 16-18 m/sek að austan með smá úrkomu. Það voru frekar fáir á vellinum, eitt 3ja manna holl á undan okkur og eitt að klára á 18. Munur að hafa allan völlinn svona fyrir okkur sjálfa. Spilamennskan var bara nokkuð góð, nokkur pör, nokkrir fuglasénsar og aldrei meira en tvöfaldur skolli. Ég spilaði fyrri 9 á 16 punktum og Siggi á svipuðu skori. Tókum svo 10, 17 og 18 heim.

Fínt og hressandi að komast út með strákunum í smá golf meðan KERLINGARNAR og MÝSNAR eru heima í fótsnyrtingu.

Loka sjúss á 18. 

 

 

 

 

 

 

Sjá fleiri myndir á myndasíðu

Formaðurinn


9. umferð í Grafarholtinu

9. umferð var spiluð í Grafarholtinu í gær. Mæting mjög góða, 11 úr hópnum og einn gestaspilari.

Veðrið var fínt til að spila golf. Úrslit urðu sem hér segir. Benni og Gummi skildu jafnir en aðrir leikir unnust allir á 16 braut. Heimir vann Aron, Maggi vann Samma, Siggi vann Inga og Gulli vann Emil

Uppfærða stöðu má sjá á úrslitasíðunni

Formaðurinn

 


Fékk Sigurður Örn í gær...

Á þriðjudag var umferð spiluð i Grafarholtinu að venju. Veðrið var með eindæmum gott, sól og töluverður hiti, smá vindur.

Við mættum 10 og voru spilaðir 4 leikir. Siggi og Emil spiluðu fyrr um daginn, þó aðeins í punktakeppni, þar sem þeir voru búnir að spila í holukeppninni.

Úrslit urðu annar þessi: Sigþór vann Samma og Óli vann Gumma 3/2. Í hinu hollinu spiluðu annars vegar Aron og Gulli og hafði Aron sigur 2/1 og hins vegar Ingi og Heimir. Þar sigraði Ingi sinn 4 leik í röð, 5/3. Ingi er sá eini sem er taplaus hingað til.

Enn vantar punkta frá Samma, Sigþóri og Óla.

... en fékk Sigurður Örn!!

Formaðurinn 

 


7. umferð í Grafarholtinu

Spiluð var umferð í Holtinu í gær. Mæting var með slakara móti í þetta skiptið eða 6 meðlimir. Einnig mættu 2 gestir, Bjössi félagi Heimis og Svava, betri helmingur hans Sigga. Líklega er þetta í fyrsta skiptið sem kvenmaður spilar með Nafnlausa. Þaqnnig náðum við rétt fylla tvö holl. Veðrið var bara flott. Smá vindur á köflum úr mismunandi áttum og þess á milli stafa logn. Hiti þokkalegur, um 12-13 gráður, en kólnaði þó nokkuð þegar sólar naut ekki við. Annars fóru leikar þannig að Siggi vann Heimi á síðustu holunni. Aron vann Samma 5/3 og leikur okkar Magga endaði í jafntefli og réðust úrslit ekki fyrr en á síðasta púttinu.

Uppfærð staða er á Staða og úrslit 2011

Emil


6. umferð í Holtinu

6. umferð var spiluð í Grafarholtinu í flottu veðri, smá vindur til að byrja með en lægði svo með kvöldinu. Topp mæting, fyrsta skiptið í sumar þar sem allir mæta. Uppfærð staða er á komin inn

Leikir dagsins fóru þannig

Aron - Benni 3/2

Heimir - Maggi 2/1

Ingi - Gulli 4/3

Emil - Óli 3/2

Sammi - Gummi 5/3

Siggi - Sigþór 1/0

Flesta punkta dagsins áttu Siggi og Emil, 36 punkta hvor.

 


5. umferð á Korpunni

5. umferð var spiluð á Korpunni og mættu 8 meðlimir. Veðrir var þokkalegt aðeins hlýrra en venjulega, um 10 gráður og enn smá vindur að NA. Í fyrra hollinu spiluðu Siggi og Sammi og hafði Siggi nokkuð öruggan sigur. Óli átti sinn besta leik í sumar og vann Aron. Í seinna hollinu var ekki mikil spenna en þar vann Benni formanninn næsta örugglega og sama var upp á teningnum hjá Heimi og Gulla en þar spilaði Heimir eins og drottning þar til hann var búinn með Gulla á 15.

Uppfærð staða er komin inn á bloggið

Formaðurinn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Nafnlausa Golffélagið
Nafnlausa Golffélagið

Nafnlausa Golffélagið er samasafn snilldargolfara sem hafa það sem sitt eina markmið í lífinu að verða betri golfarar sama hvað það kostar.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband