25.7.2012 | 19:23
11. umferð - Korpan
11. umferð var spiluð á Korpunni síðasta þriðjudag. Veðrið gott að venju, nánst logn en kólnaði aðeins þegar líða tók á kvöldið. Mæting var 100% og komust færri að en vildu.
Leikir kvöldsins fóru þannig:
Í fyrsta holli vann Benni Heimi og Óli sigraði Gulla.
Í öðru holli voru leikar nokkuð jafnir en þar hafði Maggi sigur á Sigga en þeir spiluð báðir á 37 punktum sem var einnig besta skor kvöldsins. Emil vann svo Sigþór
Í loka hollinu hafði Aron betur á móti Inga og Ásgeir vann Hjört.
Einn örn leit dagsins ljós í þessari umferð en Siggi náði erninum á 11 holu eftir glæsilegt innáhögg af 200 metrum og eitt pútt. Maggi var svo mjög nálægt því að taka annan örn í hollinu. Hann sló teighöggið á 18. inn á flöt og var um 1,5m frá pinna en rétt missti púttið.
Staðan í punkta og holukeppninni hefur líklega aldrei verið jafnari. Á toppnum í holukeppninni er Óli með 6,5 vinninga og Aron er þar á hælum hans með 6 vinninga en á einn leik til góða. Í punktakeppninni er baráttan gríðarlega spennandi en þar eru Siggi og Aron efstir með 32,3 punkta að meðaltali. Alls eru 8 menn með yfir 30 punkta að meðaltali þ.a. allt getur gerst þar sem nóg er eftir af umferðum og þá fara slæmu leikirnir að detta út.
Úrslit má sjá á úrslitasíðunni að venju.
Formaðurinn
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2012 | 08:58
10 umferð í Holtinu
Tíunda umferð var spiluð í Holtinu í gær í frábæru golfveðri, einu því besta í sumar.
Góð mæting var en alls mættu 11 úr Nafnlausa golffélaginu og einn fyrrverandi félagi, Sammi, fyllti upp í síðasta hollið.
Leikar fóru annars þannig:
Aron sigraði Hjört og Emil vann Magga í fyrsta holli
Í öðru holli marði Benni sigur á Sigga og Heimir vann Inga
Í loka hollinu spiluðu vinnufélagrnir Óli og Ásgeir og hafði Óli sigur þar.
Gulli var stakur en átti besta skor í punktum talið ásamt formanninum, eða 39 punkta.
Nú eru búnar 10 umferðir og men búnir að spila 6-8 leiki í holukeppninni. Þar þurfa allir að spila við alla þ.a. um er að ræða 12 leiki. Við erum í nokkuð góðum málum með mætingu og eru 9 leikdagar eftir ef við gerum ráð fyrir að spila fram í miðjan september.
Sjá annars stöðu á úrslitasíðunni
Formaðurinn
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2012 | 19:57
8. umferð í Holtinu
8. umferð var spiluð í Grafarholti þriðjudaginn 26. júní og frábæru veðri. All mættu 9 og spilaðir voru 4 leikir. Úrslit urðu sem hér segir:
Jói vann Sigþór
Aron vann Óla
Sigg vann Ásgeir
Heimir vann Gulla
Heimir átti besta hringinní punktum talið eða 37 punkta.
Sjá nánari stöðu og úrslit á Úrslitasíðunni
Nú er Meistaramót GR að hefast þ.a. engin umferð verður í Nafnlausa Golffélaginu þá vikuna. Næsta umferð verður því 10. júlí. Alls munu 5 meðlimir Nanfnlausu taka þátt í Meistaramótu GR en þeir eru Jói, Hjörtur, Gulli, Siggi og Emil.
Formaðurinn
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2012 | 19:26
7. umferð - Korpan
7. umferð var spiluð á Korpunni þriðjudaginn 19. júní. Alls mættu 10 úr Nafnlausu ásmt 11. manni, fyrrverandi Nafnlausa meðlimi, honum Samma. Veðrið þokkalegt en samt ekkert sumar veður.
Úrslit urðu þannig að Jói vann Benna, Hjörtur vann Sigga, Maggi og Ásgeir skildu jafnir, Óli sigraði Sigþór á 18. braut og Emil vann Heimi, sem reyndar hætti eftir 10.
Flesta punkta átti Ásgeir, 33 punktar.
Sjá úrslit á Úrslitasíðunni
kv
Formaðurinn
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2012 | 22:20
6. umferð í Grafarholti
6. umferð var spiluð í Grafarholtinu þriðjudaginn 12. júní. Veður þokkalegt en frekar kalt.
Alls mættu 11 af félögum í Nafnlausa og einn gestur.
Úrslit urðu annars þessi:
Aron vann Gulla á síðasta púttinu
Ingi og Óli skildu jafnir og sömuleiðis Sigþór og Benni
Siggi tók Jóa í bakaríið á besta skori dagsins eða 39 punktum
Hjörtur sigraði svo Magga á 17. braut.
Sjá annars úrslit á úrslitasíðunni.
Formaðurinn
Íþróttir | Breytt 13.6.2012 kl. 07:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2012 | 22:42
Korpan, 5 umferð
5. umferð var spiluð á Korpunni í kvöld. Mæting var ágæt, aðeins vantaði píparana. Brjálað að gera í lögnunum. Korpan leit bara vel út og flatirnar töluvert betri en í Holtinu. Það blés soldið að norð-austan en lægði aðeins með kvöldinu en hitastigið var í lægri kantinum, orðið ansi kalt undir lokin. Þrír gestaspilarar spiluðu með Nafnlausu að þessu sinni en það voru þau Dagrún, Svava og Eiríkur
Annars urðu úrslit sem hér segir:
Ásgeir vann Aron
Óli vann Heimi
Benni sigraði Hjört á síðustu holunni
Jói tók Magga, held að þeir hafi bara tekið 9 holur miðað við punktana hjá þeim ;-)
Ingi vann svo Emil á síðasta púttinu á 18.
Gulli spilaði svo stakur
Formaðurinn
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2012 | 23:02
4. umferð í Holtinu
4. umferð var spiluð í Grafarholtinu síðasta þriðjudag. Veður var ágætt en batnaði sem á leið leikinn og var orðið frábært spilaveður í lokin. Mæting var mjög góða, aðeins vantaði Benna.
Leikar fóru annars þannig:
Aron vann Heimi
Ingi og Ásgeir skildu jafnir (að ég held)
Sigþór vann Magga 3/2
Hjörtur vann Gulla 2/1
Óli vann Sigga 2/0
Jói vann Emil 2/1
Sjá nánar úrslit og stöðu á úrslitasíðunni. Munið svo að kommentara á blogginu!
Næsta umferð er plönuð á Skaganum eftir viku
kv, Formaðurinn
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2012 | 09:48
3. umferð í Grafarholti
Þriðja umferð var spiluð í Grafarholti í gær.
Veður var þokkalegt, blés nokkuð þétt að austan sem kom sér t.d. vel á 8. 9, 10 og 12 (fyrir suma). Kólnað soldið með kvöldinu.
Alls voru spilaðir 5 leikir og urður úrslit sem hér segir
Heimir vann Ásgeir á 14. að mér skilst, eftir frábært golf
Maggi vann Óla eftir mjög góða spilamennsku (að eigin sögn)
Sigg sigraði Gulla 3-1 (eftir að Gulli kláraði alla boltana sína á 14.)
Emil hefndi fyrir tapið á Sweetwood í Englandi og vann Aron á 18.
Sigþór og Ingi skildu jafnir á flottu skori (38 og 36 punktum)
Hring dagsins átti Heimir er hann spilaði á litlum 44 punktum. Glæsilegt Heimir. Ísskáps dvölin síðasta þriðjudag hefur greinilega skilað sér.
Sjá Úrslitasíðu
kv, Emil
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.5.2012 | 11:45
2. umferð í Grafarholti
Önnur umferð hjá okkur var spiluð í Grafarholtinu þriðjudaginn 8 maí. Góð mæting var en alls mættu 11 og vantaði aðeins 2 spilara. Þeir voru víst eftir sig eftir golferðina til London þó aðrir sem fóru í sömu ferð hafa mætt ;-)
Annars var spilmennskan mjög góð, flestir yfir 30 punktum. Siggi átti besta skor í punktum dagsins, alls 37 punkta.
Annars fóru leikar þannig:
Siggi - Sigþór: Jafnt
Gulli - Emil: jafnt
Ásgeir vann Benna
Ingi vann Jóa
Hjörtur vann Heimi
Óli spilaði stakur
Sjá nánar á Úrslitasíðu
Veðrið var frábært alveg fram undir 16 braut en þá fór að snjóa og flatirnar urðu hvítar um leið og teigarnir sleipir. Menn klárðuð samt að spila þó sumir kvörtuðu meira en aðrir þrátt fyrir topp skor. Þó ber að hafa í huga að sömu aðstæður voru hjá öllum þeim sem spiluðu holukeppni.
Jói að pútta á 16. flöt
kv
Emil
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.5.2012 | 21:23
Afmælisferð Nafnlausa Golffélagsins 2012
10 ára afmælisferð Nafnlausa Golffélagsins var farin í byrjun maí. Alls fóru við 8, þar af 5 frá Nafnlausum og 3 gestaspilarar. Flogið var til London og gist á Lingfield Park Marriott Hotel & Country Club sem er rétt sunnan við London. Topp aðstaða með öllu. Þar voru spilaðir 4 hringir. Einnig var farið á Sweetwoods Park Golf Club og þar spilaðir 3 hringir. Báðir vellirnir voru mjög góðir, sérstaklega Sweetwood völlurinn en hann var alveg einstaklega fallegur. Þó vellirnir hafi verið nokkuð blautir vegna langvarandi rigninga í Bretlandi þá voru þeir í mjög góðu standi og skemmtilegir.
Hópurinn var gríðarlega vel skipaður og skemmtilegir golfarar. Ekki nóg með að góðir golfarar væru hér á ferð þá skartaði hópurinn tveimur af bestu dómurum landsins í golfi. Ferðin var því ekki bara skemmtileg heldur lærðu menn ýmislegt nýtt um regluheim golfíþróttarinnar.
Settar voru upp tvær formlegar keppnir að hætti Nafnlausu en það var holukeppni (allir við alla) og punktakeppni (best af 5). Sigurvegarar voru Aron í holukeppni og Stein í punktakeppni. Að sjálfsögðu var svo Guinness keppni í hverju holli.
Guðbrandur, Maggi, Hjörtur, Steini, Sammi, Aron, Siggi, Emil.
Sjá fleiri myndir undir London 2012.
Formaðurinn þakkar spilafélögunum fyrir vel heppnaða ferð og þá sérstaklega stofnanda og fyrrverandi formanni fyrir frábært skipulag og vel valda velli.
Emil
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
Myndaalbúm
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar