25.7.2012 | 19:23
11. umferð - Korpan
11. umferð var spiluð á Korpunni síðasta þriðjudag. Veðrið gott að venju, nánst logn en kólnaði aðeins þegar líða tók á kvöldið. Mæting var 100% og komust færri að en vildu.
Leikir kvöldsins fóru þannig:
Í fyrsta holli vann Benni Heimi og Óli sigraði Gulla.
Í öðru holli voru leikar nokkuð jafnir en þar hafði Maggi sigur á Sigga en þeir spiluð báðir á 37 punktum sem var einnig besta skor kvöldsins. Emil vann svo Sigþór
Í loka hollinu hafði Aron betur á móti Inga og Ásgeir vann Hjört.
Einn örn leit dagsins ljós í þessari umferð en Siggi náði erninum á 11 holu eftir glæsilegt innáhögg af 200 metrum og eitt pútt. Maggi var svo mjög nálægt því að taka annan örn í hollinu. Hann sló teighöggið á 18. inn á flöt og var um 1,5m frá pinna en rétt missti púttið.
Staðan í punkta og holukeppninni hefur líklega aldrei verið jafnari. Á toppnum í holukeppninni er Óli með 6,5 vinninga og Aron er þar á hælum hans með 6 vinninga en á einn leik til góða. Í punktakeppninni er baráttan gríðarlega spennandi en þar eru Siggi og Aron efstir með 32,3 punkta að meðaltali. Alls eru 8 menn með yfir 30 punkta að meðaltali þ.a. allt getur gerst þar sem nóg er eftir af umferðum og þá fara slæmu leikirnir að detta út.
Úrslit má sjá á úrslitasíðunni að venju.
Formaðurinn
Eldri færslur
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
Myndaalbúm
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.