Leita í fréttum mbl.is

Sunnudagurinn 9. júlí 2006

4 hittust í Grafarholtinu og spiluðu umferð, leikar fóru þannig: Heimir vann Samma.Benni vann Óla. Leiskýrsla Heimis:Í dag fóru fram tveir leikir svo vitað sé. Báðir voru þeir skári en þessi skandall sem fram fór í Berlín í dag undir einhverjum merkjum íþróttaanda... ekki orð um það meir.Í stuttu máli: Ég var lélegur en vann samt. Eftir frekar jafnan leik. Lykillinn að þessum óvænta sigri var á margfrægri 15. Sammi átti forgjöf, ég með tvær upp. Báðir með sæmileg dræf, Sammi þó betra. Annað höggið mitt frekar stutt svo ég átti eftir 170 metra eða svo. Ég hugsaði: "Sko. Ef ég legg upp, þá set ég örugglega beint í pollinn á 4. höggi. Betra að setja strax í helv. pollinn og geta allavega sagst hafa reynt". 3-tréð upp, lamið og sett hægra megin við grín, pinhæ. Sammi lagði upp, setti svo yfir pollinn hægta megin og oni dældina þar, stuttur inná og endar í 7, en ég átti frekar lélegt innáhögg, rétt inná, grín (4. högg) svo ótrúlega lélegt, skakkt pútt, 2 metra frá en setti það í svo holan féll. Svo tók ég létt - skítlétt - par á 16: 3:2.Takk fyrir leikinn Sammi Leikskýrsla Benna:Við mættum tveir á teig á móti Óla.Bakkus sem hafði verið með mér nóttina áður vildi ekki skilja við mig alveg strax og mætti með.Benni minn  -  þú ættir að skella í þig einum köldum sagði Óli, þetta hljómaði vel - svo ættir þú að taka 3 með þér í pokann sagði Sammi.Ég minntist minntist hjálpræðis Samma þegar hann bauð mér bílinn í fyrra og vissi sem var, að það var eitthvað annað en hjálpsemi hjá þessum drengjum í minn garð og ég lét ekki blekkjast.Ein köld malt á teignum og appelsín út á velli lagði síðan grundvöllin að 5/3 sigri sem var óverðskuldaður hjá mér.Gott par hjá Óla kom honum yfir á fyrstu, á næstu brautum nýttum við okkur vel breidd vallarins og vorum gjarnan í hópi með öðrum hollum, óskyldum okkur.Eldri kona skammaði Óla á sjöttu fyrir að  fara í vitlaua átt, og pörupiltar  stálu kúlunni minni á áttundu enda var hún svo sem ekki í alfaraleið.Par hjá báðum á 13. gáfu vonir um að spilamennska væri að hefjast, en Óli dældi tveimur boltum í átt að Rauðavatni á 14. og var þar Dormie eftir að ég lauk holu á 7 höggum.Ég vil helst minnast 15. eftir þessa keppni en þá átti ég 60 metra eftir í þriðja höggi sem ég yfirsló og náði síðan sjaldgæfu pari á þessari martraðarbraut sem ég lék á 17 höggum í mínu fyrsta meistaramóti.Þakka góðan félagsskap í góðu veðri í Grafarholtinu í gær Benni

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta virkar eflaust

nafnlaus (IP-tala skráð) 8.4.2007 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Nafnlausa Golffélagið
Nafnlausa Golffélagið

Nafnlausa Golffélagið er samasafn snilldargolfara sem hafa það sem sitt eina markmið í lífinu að verða betri golfarar sama hvað það kostar.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband