Færsluflokkur: Íþróttir
21.6.2007 | 16:06
Shoot out 2007
Nafnlausa Golffélagið hélt sítt fyrsta Shoot out mót föstudaginn 15.júní og mættu 8 leikmenn til leiks.
Þið sem mættuð ekki misstuð af svakalegri skemmtun og snilldar golfi. Teknar voru tvær æfingarholur, þið sem þekkið shoot out vitið af hverju. Þið hin þurfið að finna út úr því sjálf.
Keppnin varð gífurlega spennandi bæði golflega og dr...... lega séð. Það er ekki spurning að við lærðum af þessu fyrsta móti hvað betur mætti fara.
EKKERT................................................... eða hvað.
Í það minnsta þá varð Ingi fyrsti Shoot out meistari Nafnlausa félagsins eftir hörkubaráttu við MIS á 9.braut.
Síðan var farið heim til Inga þar sem tekið var vel á móti okkur og verðlaunaafhending fór fram.
Spurning um hverjir muna eftir henni???????
Svona í lokin þá viljum við þakka Inga og konu hans fyrir að hýsa okkur og þetta golfmót er orðið að hefð.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.6.2007 | 15:41
6. leikdagur
Spilað var í Grafarholtinu 19. júní, með rástímum 18:20, 18:30 og 19:10.
fínt veður var og menn vel stemmdir til golf iðkunar.
Nýjustu úrslitin eru komin hér til vinstri.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.6.2007 | 22:18
5. leikdagur, úrslit.
Spilað var í Holtinu og er völlurinn enn ekki orðinn dógu góður, flatirnar lélegar og brautirnar alls ekki nógu góður.
Veðrið var fínt, eilítill vindur en datt svo niður þegar leið á, en kólnaði þegar sólin fór.
Úrslitin eru í dáldkinu hér til vinstri.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2007 | 10:21
5.Leikdagur
Þá er komið að fimmta leikdegi og virðist sem að við ætlum að fá snilldar veður.
Það er farin að færast harka í leikinn og greinilegt að þetta verður spennandi sumar. Þó svo að menn hafi fengið forgjafarhækkun þá virðist standa á hringjum þar punktar sem eru fleiri 42.
Rástímar eru klukkan 17:00 - 17:10 og 17:20 og á Samm heiður skilið fyrir að redda okkur þessum tímum.
Eins og hann sagði sjálfur frá þá var hann mættu klukkan 07:30 í sólbað upp í Grafarholti.
Það vantar aðeins upp á menn skrifi frá því markverðasta sem gerist hjá hollinu, reynum að bæta úr því.
Íþróttir | Breytt 21.6.2007 kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2007 | 12:33
4. leikdagur
Þriðjudaginn 5. júní 2007 á að spila 4. leikdag, en vegna veðurs þá verður hann felldur niður og frestaður um óakveðinn tíma.
Suðaustan 10-15 m/s og rigning um vesturhluta landsins fram yfir hádegi, en síðan úrkomulítið og hægari vindur. Nokkuð bjart veður norðaustan- og austanlands. Hvessir aftur suðvestanlands seint í kvöld. Suðaustan 8-10 víðast hvar á morgun. Aftur rigning um tíma vestanlands í fyrramálið en annars skýjað með köflum. Hiti 8 til 14 stig, en allt að 16 til 18 stigum norðaustan- og austanlands.
Formaðurinn.
Íþróttir | Breytt 21.6.2007 kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.5.2007 | 22:33
3. Leikdagur
Þá er 3. leikdegi lokið og úrslitin komin inn á sinn stað.
Spilað var á Korpunni þriðjudaginn 29. mai í fínu veðri, dálítill vindur á fyrri 9 og það beint á móti, en slapp allt saman til, flestir að spila þokkalega.
Flatirnar á Korpunni mættu nú aðeins fara að taka við sér, spáin er góð fyrir næstu viku og því ætti þetta allt að koma.
Formaðurinn.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2007 | 10:00
2. leikdagur
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2007 | 08:33
2.Leikdagur
Rástímar fyrir daginn í dag eru 17:00 - 17:10 og 17:20. Við ætlum að spila á Korpu í blíðskaparveðri.
Höfuðborgarsvæðið
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: V-læg átt, 3-8 m/s og stöku él eða skúrir. Hiti 2 til 7 stig. Spá gerð 22.05.2007 kl. 06:41
Þetta getur ekki orðið betra.
Menn geta séð stöðuna eftir 1. leikdag með því að smella á Úrslit 2007 undir Síður. Það er greinilegt að forgjarfarbreytingar hafa verið að stríða mönnum og voru sumir með "mun" fleiri punkta enn þeir reiknuðu í upphafi.
Eins og fram kom í pósti frá formanninum þá á eftir að skipa í lokahófsnefnd. Eins og venjulega þá verður örugglega slegist um þetta embætti eins og öll önnur. En ég við biðja menn að sýna stillingu og koma sínum umsóknum áleiðis til varaformanns.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.5.2007 | 19:37
Nýja forgjöfin
Meira bullið með þessi forgjafarmál hjá GR. Ég hef verið að reyna að skrá inn hringinn frá því síðasta þriðjudag. Skv nýrri forgjöf (19) hefði ég átt að lækka um 0,3, skv punktafjöldi upp á 37 punkta. Þegar ég skrái þetta inn þá fæ ég forgjöf 17 og 35 punkta. Hélt að þetta væri galli í síðunni, þar sem unnið hefur verið að uppfærslu síðunnar.
Ég tók svo þátt í móti á Hvaleyrinni í dag með nýju forgjöfinni, að ég hélt. Skorið er svo sem ekki í frásögur færandi, enda skipti ekki máli í þessu tilfelli. Ég sé svo þegar ég kem inn að ég er með gömlu forgjöfina. Þá höfðu Keilismenn ákveðið að taka ekki marka á nýrri forgjöf GR-inga og færa inn úrslit skv þeirr gömlu. Mér skilst að þetta sé orðið eitthvað hitamál milli klúbbanna. Hvers eigum við að gjalda? Verðu maður að halda úti tveimur forgjöfum, einni fyrir GR velli og annarri fyrir aðra velli? Hvaða bull er í gangi.
Sjá spjall á kylfingur.is og færslu frá 18.05, Tilkynning frá mótanefnd Keilis á heimasíðu Keilis
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.5.2007 | 22:31
1. leikdagur
Þá er fyrsti leikdagur að baki, spilað var í Grafarholtinu, rástímar 17:00, 17:10 og 17:20, veðrið var ekkert til að hrópa húrra fyrir, talsverður vindur og smá skúrir með. Völlurinn er fínn miðað við árstíma, hann lofar góðu, vantar aðeins meiri hlýju og smá rigningu í þetta þá kemur þetta.
Mæting var góð í dag, 10 mættir, Aron, Denni, Maggi, Heimir, Gulli, Sammi, Benni, Emil, Óli, Ingi.
Úrslit eru í vinstri dálki.
Menn eru svo beðnir um að lýsa skemmtilegum atriðum sem áttu sér stað í hollunum.
Formaðurinn
Íþróttir | Breytt 22.5.2007 kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eldri færslur
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
Myndaalbúm
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar