Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Íþróttir

Sunnudagurinn 27. ágúst 2006

Denni og Emil hittust og spiluðu sinn leik.

 

Leikar fóru þannig að leikurinn féll, þar sem Denni var einn upp eftie 17 en tapaði 18. holunni.


Miðvikudagurinn 23. ágúst 2006

Spiluð var umferð í Grafarholtinu, leikar fóru þannig.

 

Denni vann Óla

Maggi og Ingi Þór gerðu jafntefli.


Mánudagurinn 21. ágúst 2006

Denni og Heimir hittust á Korpunni og háðu sinn leik, leikar fóru þannig að Denni hafði sigur á 17. holunni


Sunnudagurinn 20. ágúst 2006

Denni, Maggi, Sammi og Gulli hittust á Korpunni og háðu leik, veðrið var frábært, sól, hiti og lítill vindur, eitthvað voru menn ruglaðir í morgunsárið þar sem menn byrjuðu á því að mæta uppí Grafarholt og heldu að það ætti að spila þar.

 

Leikar fóru þannig:

Denni vann Samma

Maggi og Gulli skildu jafnir


Þriðjudagurinn 15. ágúst 2006

Ingi Þór og Benni spiluðu á Oddinu í dag og úrslitin urðu þau að Benni hafði sigur á Inga Þór

 

Leikskýrsla Benna:

Leikskýrsla   Benni vs Ingi Þór

 

Spilað var á leikvangi Íslandsmóts í Urriðadal og stóðst völlur allar væntingar.

Það ætti að vera skyldumæting á þennan völl amk. einu sinni á ári.

Grín voru reyndar svo hröð að ég kvíði að koma aftur á GR-grín.

Leikur var í jafnvægi fram á 10, þá fór Ingi að hugsa um landsleikinn og ég tók 3 í röð og á 16. náði ég 3 / 2 sigri.

Sigurinn var reyndar í svolitlum gjafapakkningum frá Inga Þór, en púttin voru bara alls ekki að detta hjá honum Ég var feginn að þurfa ekki að fara á 17 undir pressu, en ég lék hana samt á bógí, 9 höggum betra skori en í síðasta móti í högleik sem ég tók þátt í þarna.

 

Takk fyrir fínan dag með fínum félögum á frábærum velli

 

 

Benni


Mánudagurinn 14. ágúst 2006

Maggi og Óli hittus á GKG og spiluð.

 

Leikar fóru þannig að Maggi hafði sigur.

 

Leikskýrsla Magga:

Sælir félagar.

Þegar ég vissi að Óli ætlaði að spila við mig fór maður að pæla hvernig hægt væri að vinna kauða.

Ég komst að því að hann hafði aldrei spilað á GKG þannig að sjálfsögðu bauð ég honum þangað til að auka vinningsmöguleikana.

 

Þeir sem spiluðu með okkur voru Emil og gestur að nafni Guðlaugur Guðlaugsson.

Báðir miklir vinir mínir enda þurfti ég á því að halda. Það má einnig koma fram að Óli er einnig góður vinur minn, en það er nú annað mál.

 

Á 1 holu átti óli gott drive og missti síðan 2 höggið til hægri þar sem tréin eru. Gulli (vinur minn) sagðist hafa séð hann fara inn í tréin, þannig að óli kallinn fékk víti og alles.

MIS tók fyrstu með 5 en óli fékk eitthvað meira. Þegar við vorum að labba á 2 teig sáum við hvar bolti lá á fínum stað pinn hæ. Og að sjálfsögðu var það boltinn hans óla.

Þannig að eins og þið sjáið er gott að hafa aðra spilara í hollinu með sér en ekki á móti.

 

Næstu holur spiluðust án þess að mikið gerðist. 2 holan féll, MIS tók 3, 4 og 5 féllu, MIS tók 6 og óli tók 7, MIS tók 8 og níunda féll. Þar setti MIS pútt í fyrir utan grín þannig að hún féll.

Spilamennskan á fyrri níu var alveg þokkaleg þannig að það gat allt gerst á seinni níu. Það byrjaði frekar rólega, 10 og 11 féllu. Óli tók síðan 12 og átti góðann möguleika að taka 13 líka en það hafðist ekki. MIS tók síðan 14 og átti þá orðið 3 holur. Óli var ekkert á því að gefast upp og 15 féll. Þá fann Gulli 2 Opal snafsa sem deilt var á liðið og það var greinilegt að það fór mismundandi í menn. Óli "hænuhaus" fór í dobbel en MIS paraði og vann þar með leikinn 4 - 2.

Aftur á móti er greinilegt að Emil á taka svona inn fyrir hverja holu ef ekki hvert högg. Eftir fjögur högg var boltinn á bakvið tréhríslu og á leiðinni inn á grín var þétt - og hávaxið kjarr.

Já, lengdin var svona 70 M. Emil sló.................... flott högg en helv..... fast þannig að maður sá fyrir sér að boltinn yrði við stöng á 2 gríni. 15 og 2 eru með samvaxin grín.

 

NEI, boltin lenti á gríni rúllaði í miðja stöng og ofan í, LÉTT PAR. Snilldar högg. Eftir þetta er spurning hvort að það eigi ekki að senda menn í lyfjapróf þar sem svo nokkuð gerist.

 

 

Við þakka Óla fyrir góða keppni og Emil fyrir að vera svona góður golfari, og miklu betri fyllibytta en Óli. Óli er líka góður golfari, en það er nú annað mál.


Sunnudagurinn 13. ágúst 2006

Formleg umferð var spiluð á Hellu í dag.

 

Leikar fóru þannig:

Svenni og Ingi skildu jafnir.

Benni sigraði Heimi.

 

Aðrir sem voru mættir til leiks:

Aron

Ingi Þór


Föstudagurinn 11. ágúst 2006

Benni og Emil hittust og spiluðu á Korpunni og leikar fóru þannig að Benni hafði sigur.


Miðvikudagurinn 9. ágúst 2006

Umferð var leikin í Grafarholtniu, í blíðskaparveðri, þó þegar líða fór á, kom smá rok og rigning.

 

Leikar fóru þannig:

Ingi Þór og Ingi skildu jafnir eftir mjög spennandi leik.

Maggi vann Svenna á 18. holunni.

 

Aðrir sem mættir voru en náðu ekki leik voru:

Aron

Óli

Gulli

 

Leikskýrsla Magga

Sælir félagar

 

Við byjuðum að spila í flottu sumarveðri og enduðum í haustveðri.

 

Það má segja að spilamennskan hjá okkur hafi verið eins, flott í byrjun en dalaði sem á leið leikinn.

 

Við byrjuðum á því að vinna til skiptis fyrstu holurnar þannig að eftir 5 holur átti ég 1. Verð að viðurkenna að það var smá heppnisstimpill yfir 5 hjá mér. Svenni var tæpur með upphafshöggið sitt og tók varabolta, sama var hjá mér. Eftir að hafa fundið boltann hans Svenna þá var farið að leita að mínum sem fannst ekki. Þegar ég fór að slá minn bolta tjáði svenni mér það að hann væri í 4 höggum í grínkanti, þannig að leikurinn var allt í einu opinn. Inná höggið hjá mér var lélegt, þannig að ég var í 4 neðst á  gríni og holann efst. Svenni átti snilldar inná högg og tryggði 6, ekki má gleyma að hann átti högg. Þannig að ég varð að setja niður ca 10, pútt upp í móti.................. og að sjálgsögðu gerði ég það. HOLANN FÉLL.

 

Áfram hélt leikurinn og eftir 9 átti ég eina. Síðan tók ég 10 og svenni 11. Ég tók síðan 12, 13 og 14 féllu.

Svenni vann 15 ég ætla ekkert að fara nánar út í þá holu............................... það sem skiptir máli er að svenni vann hana.

Þannig að ég átti eina og þrjár eftir. 16 féll og 17 líka. En þar var svenni í góðum sjéns að vinna holuna þannig að allt yrðir jafnt fyrir 18.

Síðan fengum við báðir 5 á 18 sem féll og ég vann 1-0.

 

Ég vil þakka svenna fyrir skemmtilegann leik og Óla haffa fyrir frábært högg á 11 þar sem hann vippaði ofan í.................. bara snilld.

 

Svo verð ég að segja ykkur hvað ég er ánægður með þennann félagsskap. Ef það koma upp góðar hugmyndir þá eru þær bara settar í framkvæmd og ekkert múður eða mas.

 

Hlakka til næsta leiks.

 

Kveðja,

 

Magnús Ingi Stefánsson ? Forstöðumaður Upplýsingasviðs


Miðvikudagurinn 2. ágúst 2006

Umferð var leikin í Grafarholtniu.

 

Leikarfóru þannig að

Gulli vann Svenna.

 

Leikskýrsla Gulla:

Sælir félagar,

já ég og Svenni vorum eina parið sem gátum tekið leik í gær og vourm líka þeir einu sem mættu þannig að við urðum 2 í holli inná milli fjögurra manna holla langt sem augað eygði. Bið á öllum brautum sem er ekki mjög spennandi, Sammi hringdi og ætlaði að hitta okkur á 2 braut og spila með okkur en við fundum hann aldrei og þó leituðum við vel og lengi í röffinu. Vorum að spá hvort ætti ekki að skíra félagið FÉLAGA LAUSA félagið eða þannig þar sem ekki koma fleiri og spila á leikdegi  en nóg um það. Leikurinn spilaðist ágætlega hjá mér þar sem Svenni var ekki líkur sjálfum sér í golfinu og lauk leik á 12 holu 7/6 sigur fyrir mig. Ég púttaði út á öllum brautum og endaði í 38 punktum (fyrsta lækkun í tæp 2 ár, loksins) lækkaði í 10,8 í forgj.  Takk fyrir hringinn Svenni.

kv, Gulli


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Nafnlausa Golffélagið
Nafnlausa Golffélagið

Nafnlausa Golffélagið er samasafn snilldargolfara sem hafa það sem sitt eina markmið í lífinu að verða betri golfarar sama hvað það kostar.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband