Færsluflokkur: Íþróttir
8.4.2007 | 23:02
Þriðjudagurinn 1. ágúst 2006
Emil og Maggi hittust og spiluðu á Grafarholtinu.
Leiskýrsla Emils:
Maggi gat ekki spilað í dag, þ.a. við Maggi spiluðum okkar leik í gærkveldi. Sá leikur fór á 18. holu að venju hjá Magga og marði ég hann 1-0. Maggi átti séns á að jafna leikinn með 50cm pútti sem svo klikkaði.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2007 | 23:02
Miðvikudagurinn 26. júlí 2006
Umferð var leikin í Grafarholtniu.
Leikarfóru þannig að
Gulla vann Samma á 14. holunni.
Óli vann Inga Þór á 18. holunni.
Maggi vann Heimir á 14. holunni.
Leikskýrsla Gulla:
gulli vs sammi
Ég og Sammi spiluðum í gær í holtinu í ágætis veðri. Ég tók fyrstu 2 á pari sú 3 féll og vann næstu 2 4up eftir 5. Sammi vann 7 og 8 en ég þá níundu. Eftir 9 var ég komin í góða stöðu 3 up. þá 10 og 11 vann ég en Sammi þá 12 eftir að ég reyndi að cutta hornið og lenti upp við stein og tók víti. 13 vann ég og var þá komið dormie ég með 5 up og 5 holur eftir, ég tók svo 14 á pari og vann hana og leikinn 6/4. Takk fyrir leikinn Sammi og Emil fyrir hringinn sem var með okkur sér til gamans.
kv, Gulli
Leikskýrsla Óla:
Ingi Þór er vinur minn. Hann byrjaði á því að koma með golf kerru í kassa,sem ég hélt að hann ætlaði að spila upp á og síðan gaf hann báðum hollunum golfbolta, þannig að ég hélt að eitthvað lægi að baki svona rausnarlegum móttökum og var ég efins svona til að byrja með.
En það lá ekkert að baki þessu því hann leyfði mér að vinna líka. Reyndar var golfkerran ekki mér ætluð heldur fékk Emil hana.? Ég þorði nú reyndar ekki
Að nota boltana sem hann gaf mér.
Fyrri 9 voru mjög jafnar 5 féllu og við unnum sitthvorar 2. 10 byrjaði vél hjá mér en 11 féll og ég átti eina, þá gaf ég Inga 12 og 13 þar sem ég var kominn
Í farið sem ég var í vikuna á undan og ég tók upp á báðum. 14 féll og ég vann 15 og 16 en þar var ég með forgjöf og átti ég þá aftur eina, en ég missti hana
Á 17 og vorum við þá jafnir og aðeins 18 eftir. Það leit ekki sérstaklega vel út hjá mér eftir annað höggið, náði ekki yfir veg en Ingi var við bönkerinn og átti létt sipp
Inn á holu ca 5-6 metra, ég setti hann þá bara upp á pinna í 3ja og lokaði þessu á pari þar sem Ingi Þór endaði á einum yfir.
Ég held bara að ég sé svona haust spilari því mér fer aldrei að ganga vél fyrr en eftir mitt sumar og fer aldrei almennilega í gang fyrr en að hausti.
Takk fyrir mig Ingi Þór.
Leikskýrsla Magga
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2007 | 23:00
Miðvikudagurinn 19. júlí 2006
Umferð var leikin í Þorlákshöfn, í blíðskapar veðri, smá gjóla, skýjað og hlýtt.
Leikar fóru þannig:
Aron vann Emil á 14 holunni.
Gulli vann Óla á 10. holunni.
Benni og Ingi gerðu jafntefli.
Sammi spilað með sér til skemmtunar.
Leikskýrsla Arons:
Emil var ekki að spila sitt golf í dag, ég átti 3 holur eftir 4 og 4 eftir fyrri 9, það gekk lítið upp hjá Emil í dag, á seinni 9 byrjaði náði Emil aðeins að klóra í bakkann en eftir að ég vann 12. og svo 14. þá var leikurinn búinn. Völlurinn var fínn, flatirnar hefðu mátt vera aðeins betur slegnar, en allt fínt að öðru leiti, skemmtilegur völlur sem er fljótur að refsa ef maður er ekki á braut.
Þakka Emil fyrir leikinn og Gulla og Óla að vera okkur til samlætis.
Aron
Leiskýrsla Gulla:
Gulli vs Óli
Við spiluðum við góðar aðstæður í Þorlákshöfn, ég paraði fyrstu 2 og vann þær og líka þá næstu. 3up eftir 3.Sú 4 féll á 9 höggum. Þetta virtist setja Óla alveg út af laginu því eftir þetta vann hann ekki holu og lauk leik á 10 holu 9/8 sigur fyrir mig. Spilaði ágætt golf 33 punkta. Óli, Emil og Aron takk fyrir hringinn.
kv, Gulli
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2007 | 22:59
Mánudagurinn 17. júlí 2006
Leikar fóru þannig að Svenni hafði sigur á Inga Þór
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2007 | 22:58
Miðvikudagurinn 12. júlí 2006
Þett byrjaði bara nokkuð vel hjá mér og var kominn 5 upp eftir 9 holur og minn maður í góðum málum. Þá var eins og tankurinn væri bara tómur. Tapaði 10, 11 féll og 12 tapaðist. Sú þrettánda var ónýt af minni hálfu en þá datt út úr Heima að hann væri að slá kúluna hans Arons !!!. Í stað þess að Heimir væri búinn að minnka muninnn niður í 2 var staðan 4 upp fyrir mér. Hann vann svo holu 14 með fugli og þá 15 á einhverju öðru en fugli, eða þannig. Á 16 braut átti ég forgjöf og náði að fella hana eftir að Heimir missti stutt pútt.. Dormie Ég gat svo gert út um leikinn á 17 með því að setja niður 50cm pútt en klikkaði og í staðinn setti Heimir niður 12M pútt. Ég náði svo loks að merja sigur á þeirri átjándu. Sem sagt 2-0.
Takk fyrir leikinn Heimir.
Takk líka Aron og ÓliLeikskýrsla Inga:Ingi vinnur Samma 4/2 Leikurinn jafn framan af. Sammi vinnu 3, Ingi 4 holu. Sammi á forgjöf á næstu 2 og vinnur þær báðar og er þá kominn 2 upp eftir 6. Ingi vinnu sjöundu, 8 og 9 falla. Sammi vinnur 10 og er því aftur kominn 2 upp. Þá verða kaflaskipti í leiknum, Sammi fer að gefa eftir en Ingi heldur sínu striki og gott betur. Fer það svo að næstu 6 holur eru eign Inga og klárar hann leikinn því á 16, 4-2 Takk fyrir leikinn Sammi. Ps Svenni vann Benna 3/2
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2007 | 22:57
Mánudagurinn 10. júlí 2006
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2007 | 18:36
Keppnisreglur Nafnlausu bikarkeppninnar.
- Spilað er um Nafnlausa Bikarinn, sigurvegari mótsins verður Nafnlausi Meistarinn.
- Spilað er holukeppni með fullri vallarforgjöf, hámarksgefin vallarforgjöf er 24, þó getur mismunur aldrei orðið meiri en 18.
- Forgjöf skal spiluð þannig að mismunur á forgjöf manna reiknast á erfiðustu holur vallarins.
- Fyrst spila allir við alla holukeppni, eina umferð, við sigur reiknast hálfur vinningur. Ef tveir verða jafnir í lok móts þá er spiluð holukeppni með samskonar forgjafarreglum og í mótinu, 18 holur í Grafarholtinu, verði þeir jafnir eftir það, er bráðabani og fá leikmenn forgjöf á þeim holum sem þeim ber. Verði fleiri en tveir jafnir í lok móts er spiluð punktakeppni, sömu forgjarareglur og í mótinu 18 holur í Grafarholtinu og er sá sem hefur flesta punkta sigurvegari, verði leikmenn jafnir er spilað punkta bráðabani.
- Þegar öllum umferðum er lokið er spiluð útsláttarkeppni, þannig sá sem er í fyrsta sæti spilar við þann sem er í fjórða sæti og sá sem er í öðru sæti spilar við þann sem er í þriðja sæti, sigurvegarar þeirra leikja spila svo um sigurinn í mótinu og þeir sem tapa spila um þriðja sætið. spilað er með sömu forgjafarreglum og í umferðunum. Verði leikir jafnir er spilaður bráðabani og fá menn forgjöf á þeim holum sem þeim ber. Einnig spila 5-8 sætið sambærilega keppni og svo 9-12 sætið osfrv. þegar félagsmönnum fjölgar.
- Keppendur í hverjum leik geta komið sér saman um keppnisvöll, ef leikmenn geta ekki komið sér saman um leikvöll er Grafarholtið aðalvöllurinn og Korpan varavöllurinn.
- Leikið er eftir staðarreglum á þeim velli sem spilað er á. Ég vil benda mönnum á að ef upp kemur ágreiningur um úrslit holu þá samkvæmt reglu 2-5 getur leikmaður komið með kröfu áður en leikur um næstu holu hefst eða á síðustu holu þegar allir leikmenn hafa yfirgefið flötina. Ef svo er getur mótsstjórnin tekið fyrir þessa kröfu og ákvarðar úrslit viðkomandi holu. Eftir að leikmaður hefur komið með kröfu þá skulu leikmenn hefja leik á næstu holu og mótstjórnin sker úr um þessa kröfu eftir leikinn.
- Í hverjum keppnishring skal leikmaður aðeins etja kappi við einn andstæðing í senn.
a) Ef leikmaður skrópar tvisvar í sama leik eftir að leikur hefur verið settur á, er leikur tapaður.
b) Mótstjóri sker úr um gildi annarra forfalla.
- Keppendur geta komið sér saman um annan keppnisdag en taflan sýnir en þó með þeim takmörkum að sé leikmaður kominn með þrjá frestaða leiki, þá telur hann ekki lengur í mótinu, einu gildir hvor óskaði frestunar, ef leikmenn koma sér ekki saman um leikdag er auglýstur leikdagur sá sem gildir.
- Öllum umferðum skal lokið fyrir 1. september ár hvert og ef umspil þarf til þá er september mánuður notaður í það, öllu umspili skal lokið fyrir Bændaglímu.
- Ef einhver keppandi getur ekki lokið keppni með ofangreindum skilyrðum, ógildast allir leikir hans.
- Kærum skal koma skriflega til umsjónarmanna mótsins sem taka á öllum kærum af mikilli festu.
- Úrslitum leikja skal komið til formanns félagsins sem fyrst eftir leik, með tölvupósti og skal sigurvegari leiksins vera ábyrgur fyrir því ásamt því að lýsa leiknum í stórum dráttum og reyna að búa til spennandi og áhugaverðann texta sem hægt verður að birta á vefsíðunni, hinum félagsmönnum til skemmtunar.
- Umsjónarmenn móts er alltaf formaður félagsins ár hvert ásamt aðstoðarmanni.
Íþróttir | Breytt 9.4.2007 kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2007 | 18:17
Sunnudagurinn 9. júlí 2006
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.4.2007 | 18:13
Miðvikudagurinn 28. júní 2006

hörkuleikur mjög jafn, Benni átti 2 eftir níu og ég jafnaði á 11. Á 12 sannaðist það að maður á aldrei að gefast upp. Holan spilaðist svona : Benni og ég vorum báðir í skóginum eftir drævið og þrátt fyrir mikla leit fannst minn bolti ekki svo ég hljóp til baka á teig , þar tóku Aron,Ingi og félagar á móti mér og hvöttu mig til dáða og sögðu mér að gefa holuna, fara heim og strjúka konunni og vildu komast fram úr. Ég gafst ekki upp og missti drævið til vinstri og átti þá en 150 m eftir að goflpokanum svo ég sló 4 höggið með drævernum út í röffinu "Sammi style" og var því á 4 höggum við hlið Benna bolta og enda þetta ævintýri með því að holan féll.
Ég átti eina á 18 teig, Benni varð að taka séns og ætlaði beint á flötina, boltinn fannst aldrei og leikurinn þar með tapaður. Alltaf gaman að spila við og Benna SV1 og Samma , ég var á 12p út og 20p inn. Benni takk fyrir leikinn.
es. Ingi þú verður að senda inn mynda af þér og skónum og vera í þeim á lokahófinu.
kv. den
Leikurinn gekk nokkuð vel hjá mér í gær á meðan Gull var að yfirslá aðrahverja flöt. Eftir 9 var ég 3 upp, hefði getað verið 4 en missti stutt pútt á níundu. Á þeirri 10 fékk ég par og var 4 upp. Á tíundu yfirsló Gulli flötina í öðru höggi og týndi boltanum og vann ég hana líka. Sama gerðist á braut 11 og 12. Ég vann þær báðar og þar með leikinn 5/7.
Það var eing gott að leikurinn var búinn þarna því ég held að ég hafi ekki fengið punkt eftir það enda komið austan 20 m/s
kv
Emil Leikskýrsla Svenna:Svenni vs Sammi Mig langar til að þakka Samma fyrir leikinn og að vera fullur í tvær vikur fyrir þennan leik okkar.Og var Sammi ósofinn í ofanálag og sólbruninn því hann skellti nefnilega olíu á sig síðasta daginn. Göngulag hans var eins og að hann væri með rakblað þversum í rasskatinu og gerði það mér leikinn léttari. En eftir að ég vann hann rann skyndilega af honum og átti hann mörg mjög góð högg eftir það. En 6/5 sigur fyrir mig. Takk fyrir leikinn. ps. Leikskýrsla Svenni vs Aron Svenni +1+2+3+4, Aron setur langt pútt í og vinnur holuna ( Átti forgjöf á hana) +3, Aron setur langt pútt í og fellir holuna, +4, Aron setur aftur langt pútt í og fellir enn eina holuna, +5+6+7. Game over 7/6 fyrir mér.Aron fer í Bása og leitar að sveiflunni ! Þakka fyrir leikinn : ) ps2. Ég vona að skórnir passi á þig Ingi Þór......... Sveinn Ásgeir Baldursson
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2007 | 18:06
Miðvikudagurinn 22. júní 2006
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
Myndaalbúm
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar