Leita í fréttum mbl.is

3. umferð í Grafarholti

Þriðja umferð var spiluð í Grafarholti í gær.

Veður var þokkalegt, blés nokkuð þétt að austan sem kom sér t.d. vel á 8. 9, 10 og 12 (fyrir suma). Kólnað soldið með kvöldinu.

Alls voru spilaðir 5 leikir og urður úrslit sem hér segir

Heimir vann Ásgeir á 14. að mér skilst, eftir frábært golf

Maggi vann Óla eftir mjög góða spilamennsku (að eigin sögn)

Sigg sigraði Gulla 3-1 (eftir að Gulli kláraði alla boltana sína á 14.)

Emil hefndi fyrir tapið á Sweetwood í Englandi og vann Aron á 18.

Sigþór og Ingi skildu jafnir á flottu skori (38 og 36 punktum)

Hring dagsins átti Heimir er hann spilaði á litlum 44 punktum. Glæsilegt Heimir. Ísskáps dvölin síðasta þriðjudag hefur greinilega skilað sér.

Sjá Úrslitasíðu

kv, Emil


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við Jói áttum leik og var leikurinn mjög jafn. Munaði aðeins 1 til eða frá fram á 14 sem Jói vann og var þá kominn 2 yfir. Á 15 braut gat ég nýtt mér forgjöfina og vinna þannig holuna. Á 16 stefndi í að ég myndi taka hana létt. Ég var í 3 höggum inni á flöt og með tvö pútt, endaði á 5. Jói endað lengst til vinstri í sínu öðru höggi og virtist vera týndur. Við Jói og Óli leituðum og var Jói nánast búinn að gefast upp þegar Siggi kom strunsandi úr skóginum hægra megin og gékk á kúluna nánast um leið, mun utar en allir héldu. Jói sló úr móanum og beint í stöngina. Púttaði svo rétt við flatarkannt og rétt krækti. Náði 5 og feldi holuna. 17 tók hann svo létt par og vann holuna og leikinn. Greinilega engin virðing borin fyrir formanninum. Takk fyrir leikinn Jói og meðspilarar, Siggi og Óli. Skemmtilegur hringur

Emil

Emil (IP-tala skráð) 30.5.2012 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Nafnlausa Golffélagið
Nafnlausa Golffélagið

Nafnlausa Golffélagið er samasafn snilldargolfara sem hafa það sem sitt eina markmið í lífinu að verða betri golfarar sama hvað það kostar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband