Leita í fréttum mbl.is

Umferð í Grafarholti 18.08

Umferð var spiluð í Grafarholtinu í dag. Aðeins áttu tvær viðureignir að fara fram, þ.e. Denni og Gummi og svo Benni og Heimir.
Heimir forfallaðist þannig og Gummi gaf leikinn eftir 10. holu. Aðrir kláruðu ekki sína leiki vegna veðurs er mér sagt. Erum við sem sagt orðnir svo góðu vanir að ekki sé hægt að spila í smá roki? Eða geta menn ekki spilað þó formanninn vanti ;-)
Ég spilaði í móti á Skagavellinum, sem ekki hefur verið þekktur fyrir mikið logn og kláraði 18 holur á 32 punktum, í hífandi roki og smá rigningu líka.
Annars spiluðu Denni og Heimir leik á sunnudaginn í Holukeppninni og hafði Denni sigur.
Munið að senda inn punkta dagsins þó þeir hafi augljóslega ekki verið margir. Þeir telja samt sem mæting.
Formaðurinn

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sjaldan hef ég undirbúið mig af jafn mikilli kostgæfni og í gær, næst síðasti hringur og úrslitahringur næsta þriðjudag.

- Einkaþjálfarinn var mættur með mér í Bása á mánudagskvöld til að fínpússa 137 metra höggin

- Jóga í þriðjudagshádeginu til að fá ró á taugarnar

- "No sex 8 hours before game"

Og hvað skeður, drengurinn mætir ekki -  er að máta gardínur fyrir stigaganginn með kellingunum.

Ég arka samt af stað með ímyndaðan Heimi  mér við hlið og þetta gengur bara ágætlega, 8 upp eftir 8 og leikurinn unninn bræðin runnin af mér og mér var farið að líka vel við Heimi aftur og jafnvel farinn að sakna drengsins.  Þá datt mér þessi í hug

Hvar er Heimir hvar er hann

ég sé hvergi drenginn

ég hættur er við að setja hann í bann

Heimir er betri en enginn

Benni

Benedikt Hauksson (IP-tala skráð) 19.8.2009 kl. 09:24

2 identicon

Mátar gardínur með kellingum
eða í öðrum hrellingum 
En er feginn með fenginn:
Frábæra drenginn!
Í engum golfstellingum.

Heimir (IP-tala skráð) 19.8.2009 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Nafnlausa Golffélagið
Nafnlausa Golffélagið

Nafnlausa Golffélagið er samasafn snilldargolfara sem hafa það sem sitt eina markmið í lífinu að verða betri golfarar sama hvað það kostar.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband