Færsluflokkur: Íþróttir
22.7.2008 | 23:05
8. leikdagur, 22. júlí, Grafarholti
Þá er 8. leikdegi lokið, spilað var í Grafarholtinu, veðrið var flott, smá vindur til að byrja með en svo bongó blíða.
Völlurinn loksins orðinn frábær, en þó 1-2 grín sem mættu vera betri.
75% mæting var í dag og vil ég þakka þeim sem mættu kærlega fyrir þáttökuna.
Úrslitin eru hér til vinstri.
Formaðurinn
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2008 | 08:23
7. leikdagur, 8. júlí, Korpan
Þá er 8. leikdegi lokið, spilað var við frábærar aðstæður á Korpunni.
Veðrið var frábært, andvari, sól og hiti, stuttbuxnaveður og stuttermabolur.
Völlurinn er, já bara orðinn frábær, flatirnir að verða þær bestu á landinu, hinsvegar þá er röffið alltaf að verða hærra og hærra og því betra að vera bara á braut.
Spilamennskan gekk hægt, hringurinn var um 4:50.
75% mæting var sem telst gott, og vil ég þakka þeim sem mættu fyrir þáttökuna.
Í næstu viku verður frí hjá okkur vegna meistaramótsins.
Formaðurinn.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2008 | 09:39
6. leikdagur, 1. júlí, Korpan
Spilað var á Korpunni.
Enn var slegið met í mætingu og var mætingin núna 83%.
Veðrið byrjaði fremur þokkalegt, töluverður vindur, en þurtt, en svo þegar fyrri 9 voru hálfnaðar þá byrjaði að rigna og eiginlega demba.
Það voru þó nokkrir sem létu sig hafa það að spila 18 holur, en margir hættu eftir 9. holur.
Siðanefnd Nafnlausa félagsins ákvað að þeir sem byrjuðu hringinn fengju punkta fyrir það sem þeir voru búnir að spila og X á restina.
Völlurinn er enn ekki orðinn nógu góður, flatirnar frekar bara lélegar.
Úrslitin eru hér til vinstri.
Formaðurinn.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2008 | 09:36
5. leikdagur, 24. júní, Akranes
Spilað var á Akranesi.
Það náðist metþáttaka þetta árið 75% mæting.
Þar sem formaðurinn mætti ekki þá verður þessi leikskýrsla frekar stutt, en gaman væri að fá leikskýrslu frá þeim sem mættu.
Úrslitin eru hér til vinstr.
Formaðurinn
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2008 | 09:19
4. leikdagur, 10. júní, Þorlákshöfn
Þá er 4. leikdegi lokið, Veður var gott.
Aðeins náðist 33% þátttaka þennann daginn og vil ég þakka þeim sem mættu kærlega fyrir þáttökuna og halda þessu félagi gangandi.
Ég held að félagsmenn verði að fara að hugsa sinn gang og fara í naflaskoðun og átta sig á tilgangingum með félaginu og hvað það er sem heldur því gangandi.
Það er aðeins einn félagsmaður sem er með 75% mætingu, næstu á eftir með 50% og svo 25% félagsmanna aðeins með 25% mætingu.
Ég er ekki undanskilinn þessum stóru orðum og hef lofað sjálfum mér því að láta ekki próflestur, pallasmíði og annað smálegt trufla mig meira í golfinu þetta árið.
Í næstu viku er þriðjudagurinn 17. júní og því tökum við okkur frí.
Formaðurinn.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2008 | 22:18
3. leikdagur, 3. júní, Akranes
Þá er 3. leikdagur búinn, spilað var á Akransesi með rástíma 16:40, mættir voru Aron, Maggi, Benni og Óli.
Breyting átti sér stað þar sem fáir mættu í dag sem allir gátu byrjað töluvert fyrr en áður ákveðið og var því samþykkt einróma að breyta um völl.
Aðeins 33% mæting var í dag og vil ég þakka þeim sem mættu fyrir þáttökuna að þessu sinni.
Veður var fínt, smá vindur, og gekk á með rigningu í lokin, en hlýtt.
Vallar aðstæður voru góðar, völlurinn fínn hjá þeim á Skaganum.
Úrslit eru komin inn hér til vinstri.
Foramðurinn.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2008 | 09:25
2. leikdagur 27. mai 2008
2. leikdagur fór fram þriðjudaginn 27. mai í Grafarholtinu.
Mættir voru Gummi, Ingi, Svenni, Denni, Emil og Heimir.
Aðeins 50% mæting og vil ég þakka þeim sem mættu.
Veður var gott og allir skemmtu sér vel allavegana þeim sem komust í 20 punkta.
Úrslitin eru komin inn hér til vinstri.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2008 | 10:03
1. leikdagur 20. mai 2008
Þá er þetta byrjað formlega, fyrsti leikdagur búinn, spilaður þriðjudaginn 20. mai í Grafarholtinu.
Vallar aðstæður góðar, völlurinn kemur vel undan vetri og lofar mjög góðu fyrir sumarið, það eru þó nokkrar framkvæmdir við malbikunar stíga, þannig að teigurinn á 4. holunni var dáldið mikið framarlega þennann daginn, svo voru gömlu vetrar grínin á 2. og 10. holununum, að öðru leiti er þetta flott.
Veðrið var frábært, logn sem er mikilvægt í golfi og svo gekk á með mjög litlum skúrum, og þá var rigningin beint niður þannig að hún kom lítið að sök.
Mættir voru: Aron, Denni, Svenni, Heimir, Gulli, Sammi og Gulli.
Aðeins 58% mæting og vil ég þakka þeim sem mættu fyrir þáttökuna.
Úrslit dagsins eru hér til vinstri á síðunni.
Af gefnu tilefni langar mig að taka eftirfarandi fram:
Við verðum að herða okkur dáldið í hraða, nú er búið að breyta golfreglunum þannig að nú er hægt að dæma meira þegar um slór er að ræða, hæg spilamennska er að drepa golfíþróttina í heiminum og því verðum við að standa okkur betur á því sviði:
Fyrra hollið var næstum 4,5 tíma að spila og voru komnir fljótlega heilli holu á eftir hollinu á undan (voru reyndar ungar og ferskar konur sem voru hraðspilandi) og voru einnig með biðröð fyrir aftan sig, að hleypa framúr er lang besta lausnin í svona löguðu þá léttist á vellinum og allir aðilar verða mun sáttari, bæði þeir sem hleypa framúr og þeir sem fá að fara framúr, tala nú ekki um allir hinir sem verða fyrir barðinu á þessu og eru fyrir aftan.
Nokkur góð ráð sem ég sá að menn máttu taka sig á í gær:
Vera tilbúinn þegar röðin er komin að þeim.
Slá sína kúlu áður en leitað er að kúlum félaganna.
Það þarf ekki að labba brautina þvera og endilanga til að hjálpa við að leita.
Taka aðeins 1-2 æfinga sveiflu, 5-8 æfinga sveiflur er allt of mikið.
Skoða sína púttlína á meðan hinir eru að pútta.
Ekki að skrifa á skorkort fyrr en á næsta teig.
Sá sem á teiginn skrifar þegar hann er búinn að slá.
Þegar maður er í algjöru rugli og skorið líka í rugla, að leita þá aðeins minna og taka varabolta.
Svo finnst mér lang best bara að vera stuttur og á braut.
Nánari upplýsingar er hægt að fá í ýmsum bæklingum gefnum út af GSI og GR.
Í golfreglum núna hefur leikmaður 45 sekúndur til að slá sitt högg, það er dáldið langur tími í ljósi þess að ef allir leikmenn nýta sér þennann tíma í öllum sínum höggum þá yrði hringurinn dáldið langur, tökum smá dæmi, 4 í holli, spila að meðaltali á 85 höggum hver, og segjum að 70 af þessum höggum þurfi langann tíma, þá eru þetta þetta 180 högg sem þurfa langann tíma, sem eru 12.600 sekúndur, sem eru 210 mínútur sem eru 3,5 klukkutímar og þá er allt labbið eftir og öll hin höggum 15x4 sem taka stuttann tíma, þannig að leikmaður sem tekur sér þessar 45 sekúndar stanslaust skemmir fyrir hinum í hollinu þar sem þeir eru að reyna að vinna upp tímann.
Formaðurinn.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.5.2008 | 10:03
Niðurstaðan eftir aðalfundinn.
Já, góðan daginn golfarar
Þá er það niðurstaðan eftir aðalfundinn í gær:
1. Nýji maðurinn hann Guðmundur var samþykktur í félagið með miklu lófaklappi.
2. Ákveðið var að fylgja keppnisplaninu eins og ég lagði það upp með.
3. Stigagjöfin verður með Eurovision formi.
4. Bestu 8 hringirnir telja og menn verða að ná 8 hringjum til að geta unnið til verðlauna.
5. Ef menn ná ekki 8 hringjum fá þeir gula spjaldið, Sjá athugasemd hér að neðan
6. Ákveðið var að heimsækja vinavellina, þ.e. hvern einu sinni.
7. Shoot out nefndin frá í fyrra stóð sig svo vel að þeir eru áfram við völd.
8. Shoot out mótið verður haldið 16. Júní á Korpunni.
9. Lokahófsnefndin var valin Sammi og Gulli
10. Lokahófsdagsetning verður valin af nefndinni sem allra fyrst, Ryder Cup verður haldið helgina 16 21 september, sem er mjög góður dagur til að vera með lokahófið, þá myndi þriðjudagurinn 16. Sept vera síðasti dagur í mótinun og laugardagurinn 20. Sept er þá lokahófsdagurinn. Nefndin er þó einráð í þessu og ræður þessu, gott hinsvegar að fá staðfesta dagsetningu sem allra fyrst.
11. Ákveðið var að spila golf um og uppúr 17:30 á meðan bjart er, en það verður að byrja fyrr þegar líða tekur á sumarið.
Þetta eru 16 leikdagar sem við erum með og því eru bestu 8 og lágmark 8 of lítið hjá okkur, það merkir að menn þurfa aðeins að mæta í helminginn af tímunum, það er of lítið, hvað segja menn um að fjölga þessu uppí 10 hringi, sem telja til skors og lágmark 10 hringir til mætinga.Eftirfarandi gæti verið drög að vallar dagskrá:
þri 13.5.2008 | Korpan æfingarhringur |
þri 20.5.2008 | Grafarholt |
þri 27.5.2008 | Grafarholt |
þri 3.6.2008 | Akranes |
þri 10.6.2008 | Grafarholt |
þri 17.6.2008 | Frí vegna 17. júní |
þri 24.6.2008 | Grafarholt |
þri 1.7.2008 | Borgarnes |
þri 8.7.2008 | Grafarholt |
þri 15.7.2008 | Frí vegna meistaramótsins |
þri 22.7.2008 | Hella |
þri 29.7.2008 | Korpan |
þri 5.8.2008 | Leiran |
þri 12.8.2008 | Grafarholt |
þri 19.8.2008 | Þorlákshöfn |
þri 26.8.2008 | Grafarholt |
þri 2.9.2008 | Korpan |
þri 9.9.2008 | Grafarholt |
þri 16.9.2008 | Grafarholt |
Aron
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2008 | 11:59
Breytingar á skipulagi fyrir komandi tímabil
Þannig að ég legg til nokkrar breytingar á skipulaginu í ár.
1. Frá 15. Mai til 16. September eru 18 þriðjudagar, þar af fer 1 í frí vegna meistarmóts og annar sjálfsagt vegna veðurs, því má gera ráð fyrir 16 leikdögum, byrjum þó þegar vellirnir opna og hættum þegar völlum lokar, þannig að leikdagar gætu orðið fleiri eða færri. Reynum að spila framað bændaglímu.
2. Ég legg til að eingöngu verði spiluð punktakeppni í ár og engin úrslita keppni.
3. 10 bestu hringirnir gilda til skors.
4. Ef menn mæta ekki í 10 skipti tvö ár í röð þá verða þeir að snúa sér að einhverju öðru og segja sig úr félaginu, byrjar að telja frá árinu í ár (árið í fyrra telur ekki með), Aðeins verður spilað á þriðjudögum og engir auka hringir telja til mætinga.
5. Punkta keppnin verður ekki þannig að punktafjöldi í leik gildi, eins og var hjá okkur í fyrra, heldur tökum við veður og vallaraðstæður inní leikinn og sigurvegari dagsins fær 12 stig, 2. Sæti 10, 3. Sætið 8, 4. Sætið 7, 5. Sætið 6, 6.sætið 5, 5.sætið 4, 6. Sætið 3, 7. Sætið 2, 8. Sætið 1, og aðrir minna.
6. Höldum einnig shoot out mótið eins og í fyrra, drekkum bara aðeins minna í ár, shoot out nefndin í fyrra stóð sig mjög vel og legg ég til að hún sitji áfram, kaupa samt aðeins minna af brennivíni.
7. Í ár höfum við úr 7 völlum að velja og væri ég til í að við leggja meiri áherslu á að spila GR vinavellina meir en hefur verið, og segja að við spilum hvern völl allavegana einu sinni.
8. Lokahófið verður dagsett strax að vori, lokahófsnefnd valin og sú dagsetning stendur og menn verða að aðlagast henni, vantar sjálfboðaliða í nefndina.
9. Ef þetta lukkast vel í ár, þá gætum við bætt inní þetta sjálfstæðri bikarkeppni á næsta ári.
Séu menn með aðrar tillögur þá þarf að birta þær fyrir aðalfundinn sem haldinn verður strax að loknum æfingahring eftir að vellirnir opna.
Gott væri að heyra í mönnum hvort þeir styðji þessa tillögu eður ei.
Í ár hafa golfreglur breyst töluvert og mun ég senda út email á næstunni til að kynna þessar breytingar, t.d. hvað leikhraða varðar, vatnstorfærur ofl.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
Myndaalbúm
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar