Leita í fréttum mbl.is

6. umferð

Umferð númer 6 var spiluð í kvöld í flottu veðri. Spáin var ekki góð fyrir kvöldið en það rættist heldur betur úr henni, kom varla dropi úr lofti og enginn vindur. Sem sagt, kjöraðstæður, enda var spilamennskan hjá sumum með eindæmum góð. Eftir leikina í dag kom upp sú hugmynd að spila næstu umferð í Borgarnesi. Þá yrði að leggja af stað úr bænum um kl 15:30 - 16:00 þannig að ræsing gæti verið um 17:00. AÐ sjálfsögðu verður tekið tillit til veðurspár.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábær hringur í holtinu.

Það var gaman að kynnast nýja félaganum honum Jóhanni og það er óhætt að segja að þar er keppnismaður á ferð.

Mér Leist ekki á blikuna í upphafi hrings þegar leit út fyrir að hann ætlaði að valta yfir mig. Jóhann var að reka niður hvert púttið á fætur öðru og var að spila frábært golf.

Ég var reyndar að spila stöðug og ágætt golf og hékk í kallinum en hann átti 3 til 4 holur á mig framanaf. Vatnaskil urðu á 15. og 16. þar sem ég náði í fyrsta skipti að jafna leikinn.

Á 17. dró ég boltann langt út á 18. braut og sá sæng mína útbreidda en Jóhann gerði sig sekan um mistök sem óþarfi er að lýsa nánar.

Ég átti síðan frábært (þó ég segi sjálfur frá) högg inn á 17. og tryggði auðvelt par og átti þar með eina holu.

Allt hollið átti góð upphafshögg á 18. og Jóhann átti ca. 120 - 30 metra og ég var u.þ.b. 105 m frá flöt og settum við báðir inn á flöt í næsta höggi.

Við fengum báðir par og þar með vann ég leikinn 1-0.

Ég spilaði á 90 höggum og fékk 35 punkta og var sáttur við það á nýrri forgjöf.

Ég þakka Jóhanni drengilega keppni og þeim félögum Inga og Magga fyrir frábæran hring.

PS. Það var bónus að fá að horfa á Magga framkvæma hreint ótrúlaga hluti og sækja hvern fuglinn á fætur öðrum úr stöðu sem hefði grætt flesta aðra.

Kv, Sammi

Sammi EXPO (IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 08:28

2 identicon

Þegar ég og Ingi lögðum af stað þá var ekki mikið sem benti til þess að þetta yrði góður golfhringur.

En það átti eftir að breytast og þá bara hjá öðrum okkar................ Eftir að við fengum báðir dobbel á annari þá fóru hlutirnir að ganga. Ég fór að fá nokkra fugla. Það furðulega við fyrri níu var á þó ég hafi fengið 19 punkta og Ingi "aðeins" 13 þá var ég "bara" eina upp. Golfið hjá Inga var ekki eins og maður er vanur að sjá, því yfirleitt er kallin stabíll og spilar gott golf. Þannig að heppnin var með mér að lenda á hans "slæma" degi. Hann líklega jafn óheppinn að lenda góða deginum hjá mér. Ég fór síðan að tína inn eina og eina holu. Leikurinn endaði síðan 4-3 og enn einn siugrinn í höfn. Þakka Inga fyrir hringinn og einnig hinum glæsilegu meðspilurunum, Jóhanni og Samma.

kv.

mis

MIS (IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 08:50

3 identicon

Leikurinn við Óla var erfiður, kallinn er farinn að slá eins og snillingur, drivinn flott hjá honum og hann að koma sér flott inná flöt, en hinsvegar var ég að spila mjög gott golf allann hringinn, og nokkuð jafn allann hringinn, munurinn á okkur var aldrei meir en ein hola á fyrri hlutanum, Óli vann fyrstu holuna en það var líka í eina holan sem hann var upp í leiknum, ég jafni á 2. holunni og þannig var leikurinn meira og minna framan af, ég komst þó eina upp öðru hverju en Óli jafnaði alltaf strax aftur, en á seinni þá var ég kominn 2up eftir 13, en hann náði að minnka á 14. Á 15. setti hann í vatnið og klúðraði góðum möguleika á að jafna leikinn, ég átti hinsvegar flott högg inná þar sem tjarnar kannturinn var notaður til að koma kúlunni áfram, ég vann 15. og því kominn 2 up, 16. féll einnig og því komið Dormie, 17. féll einnig og því leikurinn unninn.

Vil þakka Óla fyrir skemmtilegann og spennandi leik og þeim Emil og Gumma fyrir góðann og skemmtilegann hring.

Lengstu pútt sem fóru í holuna var um 5-6 metrar frá Óla á 9. flötinni og Emil á 18. flötinni.

Stysta pútt hinsvegar sem ekki fór ofaní, var 45cm á 10. holunni hjá Aroni.

Högg dagsins í holinu kom frá Aroni þegar ég notaði steinkantinn við 15. tjörnina til að koma mér inná flöt.

Aron

Aron Hauksson (IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 10:17

4 identicon

Gleymdi að taka fram að golfið var mjög jafnt í dag, 9 pör, 9 skollar, 80 högg, 37 punktar og ný forgjöf 10,5

Aron

Aron Hauksson (IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 10:18

5 identicon

Við Gummi áttum leik saman og var golfið hjá okkur ekki til fyrirmyndar. Á fyrri 9 var ég þetta 1 til 2 yfir og endaði á vinna kallinn á 15 braut (5/3), sem ég reyndar spilaði ekki. Fór 16. brautina til baka til að prófa eitthvað nýtt. Það virkaði ekkert betur, alltaf í tjóni með þessa 15 braut. Það voru þó aðrir í hollinu sem voru að spila vel, Aron á flottu skori og Óli var að slá ansi vel.  Við Gummi áttum þó eitt breik, tókum teiginn í fyrsta skipti á 18. braut eftir flott par hjá Gumma. Góðir!

Emil Hilmarsson (IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 11:55

6 identicon

Það er greinilegt að ég þarf að kíkja meira á æfingasvæðið. Ég er farinn að tapa hverjum leiknum á fætum öðrum og meira segja á móti mönnum sem eiga slakan dag.  Emil hafði greinilega slæm áhrif á mig og ég fór á sama láa golfplan og hann var á, ekki gott.  Ferðafélagar okkar Aron "beini" Hauksson og Óli "Fylkismaður #1" áttu fínan dag því við náðum ekki teignum fyrr en á 18. Ég vil þakka mönnum fyrir hringinn og mun nú draga mig í hlé frá golfi í 2-3 vikur.

Kveðja

Guð

Guðmundur (IP-tala skráð) 29.6.2009 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Nafnlausa Golffélagið
Nafnlausa Golffélagið

Nafnlausa Golffélagið er samasafn snilldargolfara sem hafa það sem sitt eina markmið í lífinu að verða betri golfarar sama hvað það kostar.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband