30.6.2009 | 23:21
7. umferð
7. umferð Nafnlausa golfélagsins í holukeppninni var spiluð í Borgarnesi í kvöld. Frábært veður í fallegu umhverfi. Alls mætu 9 leikmenn til leiks og einn gestaspilari. Skemmst er frá því að segja að Aronn vann Heimi 4/3, Emil vann Samma 4/2, Ingi vann Óla 4/2 og Benni vann Gulla 3/1. Þið færið inn leikskýrslur.
Eldri færslur
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
Myndaalbúm
Spurt er
Hvað á að lækka mikið í forgjöf sumarið 2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jæja nú var viðfangsefnið hann Heimir, ekki byrjaði það vel hjá mér, Heimir vann fyrstu holuna með stókostlegu pútti fyrir pari, 9 metra pútt. En svo lá leiðin uppávið hjá mér þar sem ég sigraði næstu 5 holur og var því 4 upp eftir 6 holur, Heimir náði aðeins að klóra í bakkann og vann 3 til baka og náði þessu niður í eina holu eftir 11, en þá fór allt að klikka hjá honum aftur og ég vann nokkrar í röð og leikurinn kláraðist á 15, 4-3, þetta var rólegur dagur hjá mér, þurfti lítið að beita mér í leiknum og endaði með 34 punkta sem telst gott miðað við að bæði Heimir og gesta maðurinn voru ekki að gera stóra hluti í dag.
Lengsta pútt sem fór í var 9 metra par púttið hjá Heimi á fyrstu holunni.
Stysta púttið sem ekki fór var 70cm frá Aroni á 16. holunni og missti parið. Enn og aftur er það ég sjálfur sem klikka á þessum stuttu púttum.
Að öðru leiti góður og hraður hringur í frábæru veðri á flottum velli, í góðum félagsskap, en flatirnar mættu þó vera aðeins betri.
Aron
Aron Hauksson (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 23:47
Við Sammi áttum leik saman og spilaði Maggi með okkur, stakur. Sammi var að slá góð drive og helv. langt. Sammi vann fystu en ég náði góðum fugli á annari holu og hélt að ég myndi vinna 4 holu auðveldlega þar sem ég átti einfalt innáhögg en þrípúttaði (það eina á hringnum) en Sammi sló upphafshöggið langt út á þriðju og komst inn á í þremur og tók svo aðeins eitt pútt og vann holuna. Annars var þetta nokkuð jafn fyrri 9. Þegar líða tók á seinni 9 þá fór ég að síga framúr og vann að lokum 4/2.
Takk fyrir leikinn Sammi og Maggi, frábært veður og flott umhverfi.
Emil
Emil (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 07:50
Ingi vinnur Óla 4/2
Þetta byrjaði ekki vel hjá mér. Óli vinur fyrstu tvær og ég næ að fella þá þriðju. Óli spilar mjög stöðugt og gott golf fram að 7 holu. Eftir það vinn ég flestar holur og er orðinn dormie eftir 13 holur. Óli vinnur næstu tvær. Ég vinn svo 16 og leikinn. Var að spila gott golf 79 högg og 38 punkta.
Mjög líkleg tilþrif ársins hjá Benna á 17. var á bak við tré, um 80 metra frá holu. Kallinn setti boltann 3 cm frá holu og vann leikinn með því.
Takk fyrir skemmtilega kvöldstund Óli, Benni og Gulli.
Ingi Ólafsson (IP-tala skráð) 7.7.2009 kl. 12:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.