Leita í fréttum mbl.is

7. umferð í Grafarholtinu

Spiluð var umferð í Holtinu í gær. Mæting var með slakara móti í þetta skiptið eða 6 meðlimir. Einnig mættu 2 gestir, Bjössi félagi Heimis og Svava, betri helmingur hans Sigga. Líklega er þetta í fyrsta skiptið sem kvenmaður spilar með Nafnlausa. Þaqnnig náðum við rétt fylla tvö holl. Veðrið var bara flott. Smá vindur á köflum úr mismunandi áttum og þess á milli stafa logn. Hiti þokkalegur, um 12-13 gráður, en kólnaði þó nokkuð þegar sólar naut ekki við. Annars fóru leikar þannig að Siggi vann Heimi á síðustu holunni. Aron vann Samma 5/3 og leikur okkar Magga endaði í jafntefli og réðust úrslit ekki fyrr en á síðasta púttinu.

Uppfærð staða er á Staða og úrslit 2011

Emil


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við Maggi áttum leik og var á einum yfir eftir 9. Gameplanið hjá mér var að láta hann halda að hann myndi vinna örugglega, vekja hjá honum falskt sjálfstraust.  Hann var kominn 3 upp eftir fyrstu 11 skv plani. Á 12 vorum við báðir á pari en ég átti forgjöf og vann eina til baka. Á 13. vann ég svo aðra og neyddist Maggi til að fá fugl á 14 til að halda henni jafnri. Á 15 ákvað ég að slá í vatnið, þar í stein og upp úr aftur og í green kannt,  til að ögra Magga. Sú féll. 16 var eins og sú 14. Magga varð að taka annan fugl til að tapa ekki holunni, tók reyndar um 7 mínútur í að lesa línuna og hefði fallið á tíma í skák;-).  Ég vann svo 17 og allt jafnt. Á 18 vorum við báðir inná í 3 og misstum svo báðir parið og enduðum á skolla. Gameplanið klikkaði semsagt hjá mér á 18, planið var par. Áttum pallinn í 16 af 18 holum, a.m.k. Meðspilarar voru Aron og Sammi og voru þeir alveg ágætir.

Emil

EMil (IP-tala skráð) 29.6.2011 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Nafnlausa Golffélagið
Nafnlausa Golffélagið

Nafnlausa Golffélagið er samasafn snilldargolfara sem hafa það sem sitt eina markmið í lífinu að verða betri golfarar sama hvað það kostar.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband