Færsluflokkur: Íþróttir
16.7.2009 | 09:07
Umferð á Korpunni 14. júlí
Spiluð var umferð á Korpunni þriðjudaginn 14. júlí.
Aðeins 6 meðlimir voru bókaðir í fínu veðri. Þeir sem spiluðu kl 15:50 voru Emil gegn Inga og Gummi gegn Benna. KL 16:50 áttu Gulli og Heimir að spila. Ekki hef ég fengið úrslit úr þeim leik enn. Emil vann Inga 1/0 og Benni tók Gumma 4/3
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.7.2009 | 09:22
Aukaumferð á Korpunni
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.6.2009 | 23:21
7. umferð
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.6.2009 | 23:04
6. umferð
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.6.2009 | 13:32
5. umferð
5. umferð verður spiluð á Korpunni í dag. Spáin virðist ágæt, gætu verið einstaka skúrir, bak við hús. Allir mæta nema Jóhann. Formaðurinn hvílir en ætlar að taka 9 holur, svona til að fylgja ykkur af stað, í tilefni þessa að þetta er í fyrsta skiptið á þessari leiktíð sem Korpan er spiluð í Holukeppninni.
Leikir dagsins eru:
Denni-Sammi
Gulli-Aron
Gummi-Óli
Heimi-Maggi
Ingi-Benni
Minni ykkur á að skila skorkortum í lok leiks.
Formaðurinn
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.6.2009 | 16:31
4. umferð
Fjórða umferð í holukeppninni fór fram í Grafarholtinu á þriðjudag. Veðrið var þokkalegt en undir lokin var orðið ansi kalt. Mætin var góð, vantaði aðeins Benna en hann stakk af til Barcelona til að fagna sigrinum í Meistaradeildinni og skildi okkur hina eftir í kuldanum. Annars vil ég biðja menn að muna eftir að skila inn skorkortum að leik loknum svo formaðurinn geti fært inn stöðuna jafnóðum. Hann á ekki að þurfa að grenja það út mörgum dögum síðar ;-)
Næsti leikdagur er svo planaður á Skaganum.
Munið svo að til að skoða leikjaplan sumarsins og úrslit einstakra leikja er farið inn á Dagskráin 2009. TIl að skoða stöðu í holukeppninni og punktakeppninni er farið inn á Staðan 2009, allt undir Síður
.Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.5.2009 | 08:58
3. umferð
Þá er þriðju umferð í Holukeppninni lokið. Hringurinn telst líka með i Punktakeppninni. Mæting var mjög góð, aðeins einn sem ekki komst.
Brösuglega gekk að bóka rástíma fyrir gærdaginn þar sem golf.is lá niðri nánast fram að hádegi á sunnudag. Þ.a. það tók því að rífa sig á lappir fyrir kl 8 á sunnudagsmorgni! Fyrir vikið var nokkuð bil á milli tíma. En það kom ekki að sök því veðrið var mjög gott og bara batnaði eftir því sem leið á kvöldið og á seinni 9 var nánast stafalogn.
Vil ég minna menn á að skila inn skori dagsins og hverjir unnu, með því að senda mér póst, þar sem ekki náðist í alla eftir leik í gær.
kv
Formaðurinn
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
20.5.2009 | 07:50
Önnur umferð
Í gær þriðjudag , var önnur umferð í Holukeppninni spiluð. Samhliða var spilað í Punktakeppninni. Veðrið var með eindæmum gott eins og síðast, sól og blíða.Mæting var þokkalega, þ.e. 9 mættu af 12.Staðan í Holu- og Punktakeppni mun verða uppfærð á síðunni Staða 2009.
Munið svo að blogga um leikina.
kv
Emil
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
18.5.2009 | 07:31
Fyrstu umferð lokið
Þá er fystu umferð lokið hjá Nafnlausa Golffélaginu. Spilað var í Grafarholti við glimrandi aðstæður í sól og hita. Sjaldan hefur Grafarholtið verið í svona góðu ástandi í byrjun sumars. Úrslit í holupeppninni urðu sem hér segir:
Magnús vann Denna
Emil vann Jóhann
Heimir vann Gumma
Ingi vann Gulla
Aron vann Samma
Benni vann Óla
Þá má geta þessa að fyrrverandi formnaður vor, hann Aron, átti væntanlega flestu punktana þennan daginn, 36 kvikindi. Þar sem þetta var frestuð umferð þá telur þetta aðeins í holukeppninni en ekki í punktakeppninni. Munið svo að blogga um leikina
kv
Formaðurinn
13.5.2009 | 13:03
Fyrsti leikdagur búinn og 100% mæting...............
Það ótrúlega gerðist að það var 100 mæting á fyrsta leikdegi þessa tímabils, þeas. ef það hefði verið spilað. En vegna veðurs var ekki hægt að spila golf þennan dag. Reyndar sást til fólks út á velli en við vorum ekki vissir hvor það væri hægt að flokka það sem golf sem þau voru að spila. Svo mikið var rokið.
Nýji formaðurinn, Emil, fékk erfitt verkefni strax á þessum fyrsta leikdegi............ átti að spila eða ekki. Þetta er mjög einfalt í okkar hóp, formaðurinn ræður og ekkert lýðræðiskjaftæði. Reyndar tók hann sína ákvörðun eftir handauppréttingar, en það hefur samt ekkert með lýðræði að gera. Þrátt fyrir að það væri búið að aflýsa leikdegi ákváðu 4 aðilar að fara út að spila og kölluðu hina ýmsum nöfnum eins og kellingar, aum.. og fleira. Þegar þessar 4 hetjur löbbuðu út úr klúbbhúsinu og á teig breytist þetta aðeins. fóru að heyrast raddir um kannski væri rokið of mikið. Þessum aðilum til varnar var ákvörðunin tekin innan dyra í algjöru logni. Þannig á endanum fór enginn út að spila og allir urðu alvöru karlmenn aftur.
Þá var ákveðið að flytja leikdaginn fram á seinnipart næsta sunnudags. Sá hringur verður ekki talinn með í punktakeppnina þar sem hringir á þriðjudögum telja eingöngu í hana.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Apríl 2013
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
Myndaalbúm
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar